Andvari - 01.01.1958, Side 82
78
Aðalgeir Kristjánsson
ANDVARI
þó að eg vildi ekki tala um það, að þér munduð tæpast vilja
koma hingað aftur, og það hefir e. t. v. alið beyg hjá mér. Svo
mikið er víst, að eg fór heim þegar í stað rnjög dapur í bragði.
Það hefir einnig komið á daginn, að eg hefi ratað í ýmsar raunir
á þessum vetri, sem eg gat ekki komið í veg fyrir, en eg get
þó látið mér detta í hug, að ekki hefðu orðið, ef við hefðum
ennþá haft yður; eg segi þetta engan veginn í því augnamiði
að niðra hinurn setta stiftamtmanni, sem helir komið fram sem
sérstaklega þekkilegur embættismaður, en nærvera yðar hefði
þó vakið allt annað og rneira traust og jafnvægi í öllu tilliti, en
einkurn þó með tilliti til andans í bænurn.
Uppþotin hérna bæði í kirkju og skóla hafa gengið mér til
hjarta, þar sem eg sit hér einangraður; eg hefi ekki frétt hið
allra minnsta fyrr en eftir á, og að blanda sér í málin fyrir einn
einstakan mann hefir mikil vandkvæði í för með sér. Að horfa
á annað eins og þetta og sjá enga leið til að bæla niður þvílíkt
ótæti, er þungbært fyrir rnann, sem vill hafa allt í röð og reglu.
— Hvað skólann snertir, þá höfum við sent ráðuneytinu skýrslu
um málið og þar sem dr. Scheving hefir sótt um lausn frá störf-
um, er nú útlit fyrir, að fá megi duglegan rnann að skólanum
í staðinn fyrir hann.
Dómkirkjupresturinn gefur skýrslu um það, sem við hefir
borið í kirkjunni og söfnuðinum, þó að eg geti ekki séð, hvað
það hjálpi honum, eða hvað ráðuneytið getur gert í rnáli, sem
svona er vaxið.
Aróðurinn er rekinn næstum opinberlega í bænum. Alrnúg-
inn heldur fundi og myndar þannig sem heild óbuganlegt vald-
Embættismenn eru einskis virtir, — nokkrir þeirra eru einnig
miður gætnir — almúginn lítur á þá sem þjóna sína, sem hann
getur hlátt áfram sagt upp, þegar hann heldur, að hann hafi
eklti lengur not fyrir þá. Svona standa málin í dag — og þannig
hefir það lengi verið, að rnaður þorir tæpast að láta nokkuð út
úr sér, án þess að eiga á hættu, að það berist allt bjagað út a
meðal fólks. Uppþotið í skólanum fékk, ef ekki fylgi, þá að