Andvari - 01.01.1958, Page 91
ANDVARI
Kringum þjóðfundinn 1851
87
að fara ekki nú með þetta frumvarp, ef eg væri fullvissaður um,
að stjórnin vildi leggja fyrir frumvarp eftir mínum aðalatriðum
að ári, og eg gæti ekki séð, að ástæður stjómarinnar fyrir bið-
inni væri fullgildar".
Nú er Slésvíkunnálið ekki nefnt á nafn í fundargerð ríkis-
ráðsins, svo að því virðist einungis hafa verið liampað framan
í Brynjólf sem tylliástæðu, enda segir hann, að sér virðist ástæður
stjómarinnar ekki fullgildar. Að vísu var Slésvíkurmálið enn ekki
til lykta leitt, og samningarnir höfðu dregizt rnjög á langinn,
en engar stórbreytingar gerzt, síðan Rosenöm fól Brynjólfi að
semja frumvarpið.
Þess vegna hníga öll rök að því, að þeir atburðir, sem frá er
greint í bréfunum, sem birt hafa verið hér á undan, hafi átt
sinn þátt í því, að þjóðfundinum var frestað og saga hans varð
slík, sem alkunna er.