Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1958, Page 93

Andvari - 01.01.1958, Page 93
ANDVARl Andvari 89 tekið þá, en al mörgum ástæðum dróst framkvæmdin úr hömlu. En þegar breyting varð á stjórn Þjóðvinafélagsins á þessu ári, þótti mér tími til kominn að hreyfa málinu á ný. Var því vel tekið í stjórn félagsins og einnig af Menntamálaráði, og hefir nú verið ákveðið að breyta ritinu á næsta ári. Mun það þá koma út í þremur heftum, livert hefti sex arkir, í nokkru stærra hroti en áður. Þess er að vænta, að sumum þyki í rnikið ráðizt, að gera slíka breytingu á gömlu og sögufrægu riti, er sjálfur Jón Sig- urðsson stofnaði og mótaði í stórum dráttum í þeirri mynd, er það hefir haft allt til þessa dags. Er allmikið hæft í þessu, en hins vegar hníga mörg og sterk rök að því, að hér sé breytt til. I fyrsta lagi er óheppilegt að gefa út samfellda röð nokkurs rits um marga áratugi, svo sem hér hefir verið gert. Upplag eldri árganga slíkra rita hlýtur brátt að þrjóta, svo að þar kemur að lokum, að kaupendur eiga þess engan kost að eignast ritið í heild, heldur aðeins mismunandi marga árganga þess frá síðari árum. Er þetta ein meginorsök þess, að óvíða eru tímarit látin haldast lengi óbreytt, heldur er skipt um nafn á þeim, þegar henta þykir, eða hafinn nýr flokkur ritsins, ef nafninu er haldið, og þar með ný árgangaröð, og verður sá háttur hér hafður. í öðru lagi gera nýir tímar og breyttar aðstæður kröfur til tímarits um form og efni, sem óhjákvæmilegt er að taka til greina. Þegar Andvari hóf göngu sína, var auðvitað ekki um annað að ræða en að láta hann koma út sem ársrit. Um myndir var naumast að ræða á þeim tíma, en úr því byrjað var að birta ævisögur merkra manna í ritinu, var venja, að þeim fylgdi mynd. Ég yeit ekki með vissu, hvert upplagið var frá öndverðu, en það var lítið, miðað við hókaútgáfu nú á tímurn. Brotið kom af sjálfu sér og sniðið við venjulegt lesmál, án mynda eða upp- drátta. Síðan hefir bókagerð almennt tekið miklum stakkaskipt- uni en þó sérstaklega útgerð tímarita. Hér kemur margt til greina, en ekki sízt það, að lesendahópurinn sem rit verða að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.