Andvari - 01.01.1940, Qupperneq 22
18
Sigurður Jónasson
andvaui
rílcisstjórnar milli Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins.
Alþýðuflokkurinn fékk einn ráðherra af þremur í hinni nýju
ríkisstjórn, en jafnframt var lagður undir ráðherra flokks-
ins meira en þriðjungur mála þeirra, er ríkisstjórnin fer
með. Þessi skipan hélzt fram á veturinn 1938. En þá lagð1
ráðherra flokksins niður starf sitt í ríkisstjórninni.
Jón Baldvinsson andaðist 17. marz 1938. Hann var fyrsti
forseti Alþýðuflokksins og gengdi því starfi í meira en 21
ár. Var það tilviljun ein, að þátttöku flokksins í ríkisstjórn,
sem studdist við þingmeirihluta samkæmt venjulegum þing'
ræðisreglum, lauk sömu nóttina sem hann féll frá?
VI.
Jón var stefnufastur, eins og hann átti skaplyndi til. Hann
fylgdi stefnu lýðræðisjafnaðarmanna og hvikaði ekki fra
henni nokkru sinni þau 20 ár, sem hann tók virkan þátt 1
stjórnmálum. Það vantaði ekki, að aðrar stefnur ksenu
fram i Alþýðuflokknum. Kommúnisminn í öllum myndum
sínum átti fylgismenn í flokknum á ýmsum tímum. f*a
voru ýmsir, sem fara vildu einhvers konar milliveg miH1
kommúnisma og lýðræðisjafnaðarstefnu. Fyrir sumum þess-
um stefnum og stefnuafbrigðum, einkum þó komrnúnism-
anum, var barizt af miklu afli innan flokksins. Svo fór og
að lokum, að þeir, senr aðhylltust kommúnisnra, klofnuðn
út úr flolcknum og nrynduðu Komnrúnistaflokk íslands
1930, en 1938 klofnaði enn nokkur hluti út úr Alþýðu-
flokknum. Það voru fylgjendur þeirrar stefnu að nrynda
skyldi sanreiginlegan flokk alþýðu úr Alþýðuflokknum °S
Kommúnistaflokknum, svo nefndan Sanreiningarfloklc al-
þýðu, Sósíalistaflokkinn. Fræg eru orð Jóns á fundi verka-
mannafélagsins Dagsbrún 13. febrúar 1938:
„Eðli verklýðshreyfingarinnar er ekki skyndiupphlaup,
hávaðafundir og æfintýri, heldur markvíst, sleitulaust strit
fj-rir málefnununr sjálfunr. íslenzkt fólk er frábitið hugsun-
arhætti komnrúnisnrans og hann sigrar aldrei hér á landr
fyrir atbeina íslendinga. Það er hið hættulegasta æfintýn