Andvari - 01.01.1940, Blaðsíða 30
26
Bjarni Benediktsson
andvari
hún sjálf segir. Hún afnemur ekki konungdæmi á íslandx
og sviptir konung ekki tign sinni. ísland er eftir sem áður
konungsriki, og hinn rétti konungur tekur aftur við völd-
um, þegar Alþingi telur skilyrði vera fyrir höndum til þess,
að svo megi verða.
Síðari ályktunin, sem Alþingi gerði aðfaranótt hins 10.
apríl, er svo hljóðandi: „Vegna þess ástands, er nú hefir
skapazt, getur Danmörlc eltki rækt umboð til meðferðar utan-
ríkismála íslands samlcvæmt 7. gr. dansk-íslenzkra sambands-
laga, né landhelgisgæzlu samkvæmt 8. gr. téðra laga, og
lýsir Alþingi þess vegna yfir því, að ísland tekur að svo
stöddu meðferð mála þessara að öllu leyti í sínar hendur.
Með sama hætti sem konungi er ókleift að fara með vald
sitt hér á landi, er dönskum stjórnarvöldum ókleift að rækja
umboð til meðferðar utanríkismála íslands eða landhelgis'
gæzlu.
Um landhelgisgæzluna stendur að því leyti sérstaklega a,
að í 8. gr. sambandslaganna er íslandi fengin heimild til að
taka hana að öllu leyti í sínar hendur, hvenær sem því lizt-
Þurftu því engin sérstök atvik að vera fyrir hendi, til ÞesS
að taka hennar væri leyfileg. Eins og að er vikið í ályktun-
inni, voru samt ríkar ástæður fyrir henni, þar sem dönskum
gæzluskipum var vitanlega ófært hingað til lands og danski
flotinn auk þess háður valdi annars hernaðaraðiljans og
þess vegna ósamrímanlegt hlutleysi íslands að þola, að hann
færi áfram með landhelgisgæzlu hér.
íslandi er að vísu ekki veitt nein heimild í sambandslog'
unum til einhliða afturköllunar umboðsins til meðerðar nt-
anríkismála á meðan sambandslögin yfirleitt gilda. En fof'
sendurnar fyrir umboði Danmerkur voru brostnar. Danniörk
hefir samkvæmt sambandslögunum engp sjálfstæða heimild
til að taka ákvarðanir um íslenzk utanríkismál, þó að hun
að vísu fari með þau. Ákvörðunarvaldið um hvert einasta
úrlausnarefni er í höndum islenzkra stjórnvalda, og úr þy1
að þeim er ómögulegt að ná til danskra stjórnvalda og segja
þeim, hverjar ákvarðanir eru teknar i íslenzkum utanríkis-