Andvari - 01.01.1940, Qupperneq 103
andvari
Finnland
99
aði finnski verkalýðurinn með allsherjarverkfalli Rússastjórn
til þess að gefa landinu frjálsa stjórnarskrá. Landsþingið
finnska var nú kosið með almennum kosningarrétti og kon-
ur fengu kosningarrétt og kjörgengi til þings. Finnland var
fyrsta landið í Evrópu, þar sem konur fengu kosningarrétt.
En þegar Rússakeisari hafði barið niður byltinguna í Rúss-
landi, voru Finnar kúgaðir að nýju og Finnland innlimað
i Rússland. Finis Finnlandiae (endalok Finnlands), kölluðu
rússnesku keisaraliðarnir í Dúmunni, þegar það var tilkynnt,
að Finnland væri afmáð úr tölu sjálfstæðra ríkja. En margt
fer öðruvísi en ætlað er. Nokkrum árum síðar leið rússneska
keisaradæmið undir lok, þegar Nikulási II. var steypt af stóli
1917, eftir ósigrana í heimsstyrjöldinni. Lýðveldisstjórnin,
sem þá hófst til valda í Rússlandi, ákvað, að Finnland skyldi
verða sjálfstætt lýðveldi innan rússnesku rikisheildarinnar.
Við kosningarnar til finnska þingsins fengu sósíaldemokrat-
arnir hreinan meiri hluta og leiðtogi þeirra Tokoi myndaði
stjórn. Brátt hófust þó miklar deilur milli hans og borgara-
flokkanna, einkum eftir að bolsevikkarnir með Lenin í broddi
fylkingar höfðu náð völdum í Rússlandi. Deilur þessar sner-
ust bæði um innan- og utanríkismál, en þó einkum um af-
stöðuna til rússneslcu ríkisheildarinnar. Eftir nóvemberbylt-
inguna í Rússlandi vildu horgaraflokkarnir finnsku slíta
öllu sambandi við Rússland, en meiri hluti sósíaldemokrat-
anna vildi taka upp sovétstjórn eftir fyrirmynd bolsevikka.
En hinir borgaralegu finnsku þjóðernissinnar með Svin-
huvud í broddi fylkingar héldu því fram, að ekkert rússneskt
stjórnarkerfi ætti við Finnland, gagnvart Finnum væru
Rússar aðeins Bobrikoffar og ekkert annað. Deilur þessar
urðu til þess, að Tokoi rauf þingið. En við lcosningarnar
varð Rússahatrið öllu öðru yfirsterkara og borgaraflokkarnir
unnu algeran meiri hluta, Tokoi varð að fara frá og Svin-
huvud tólc sæti hans. Meiri hluti sósíaldemokrata undir for-
ustu Kuusinen undi eklci þeim málalokum og gerði upp-
reisn og nú gaus upp ægileg borgarastyrjöld. Svinhuvud-
stjórnin varð að flýja til Vasa og tólcst henni með erfiðis-