Andvari - 01.01.1940, Page 105
andvari
Finnland
101
sænsku í landinu, enda þótt það hafi verið mest sænskri
nienningu að þakka, að Finnar stóðu af sér strauminn aust-
an að, meðan þeir voru undir kúgunarvaldi keisarans.
Finnskir stúdentar neituðu að tala sænsku. Fjöldi Finna,
sem voru af sænskum uppruna, lögðu niður sín sænsku
settarnöfn og tóku finnsk. Jafnframt var reynt að hindra
alla menningarstarfsemi sænskra manna, reynt að loka
skólum þeirra og gera þeim erfitt fyrir um alla útgáfustarf-
semi. En sænska þjóðarbrotið stóð algerlega af sér straum-
inn, og áður en langt um leið fór fylgi Lappomanna að
hnigna og sósíaldemokratar unnu aftur á. Svo fóru leikar,
að Svinhuvud fór frá og miðflokkarnir gerðu bandalag við
sósialdemokrata og kusu bændaforingjann Kallio ríkisfor-
seta Finna. En foringi framsóknarflokksins, Cajander, varð
forsætisráðherra í ráðuneyti, sem var að mestu leyti skipað
fulltrúum sósíaldemokrata og bænda. Siðan hafa lcostir
Lappomanna verið þrengdir, svo að þeir eru því nær úr
sögunni. Kallio, Cajander og Tanner, foringi sósíaldemokrata,
hafa á tveim síðustu árum ráðið mestu í Finnlandi og stefna
þeirra hefir að mestu leyti verið sú sama og Staunings í
Lanmörku og Per Albin Hansons í Svíþjóð. Það er því al-
veg rangt, að í Finnlandi Kallios hafi ríkt fasismi. Finnski
fasistaflokkurinn var bannaður og leystur upp síðastliðið ár.
Með samstarfi verkamanna og bænda undir stjórn Kallio,
Lajanders og Tanners var byrjun hafin á því að græða þau
sár, sem borgararstyrjöldin hafði skilið eftir í finnsku þjóð-
lífi. Virðist svo, sem þau sár hafi að mestu verið gróin, þegar
rússneska innrásin hófst, því að víst er, að Rússar áttu þá
fáa formælendur í Finnlandi. Þótt agasamt hafi verið í
Pinnlandi síðustu 20 ár, hefir landinu fleygt fram á öllum
sviðum. Fólkinu hefir fjölgað mjög ört, þorp og nýbýli hafa
þotið upp í hinum strjálbýlu sveitum, ný og ný svæði hafa
verið rudd og breytt í akra og graslendi, landbúnaðurinn
hefir blómgazt og iðnaðinum fleygt fram. Lifskjör fólks-
ins hafa batnað, mikil örbirgð þekkist tæplega í Finnlandi.
Atvinnuleysið hefir á síðustu árum verið nær óþekkt fyrir-