Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 19
Andvari
1930
17
frv. ÞaÖ hefir verið stungið upp á þvi, að á væntanlegri
sýningu hér 1930 yrði reistur »fullkominn sveitabær í
gömlum stíl, með öllum innanstokksmunum, sjóbúð með
öllum veiðarfærum o. fl. þess háttar«. Eg held að rétt-
ara væri að hafa til þess einhvern af þeim hinum mörgu
gömlu bæjum, sem enn standa, sýna lífið þar eins og
það var áður með öllum fornum tækjum og taka kvik-
mynd af. Þá mætti og setja í lag gamla verbúð í Þor-
jákshöfn eða á Eyrarbakka, manna hana og búa út eins
og áður tíðkaðist og sýna lífið í verinu eins og því
hefir verið lýst svo skilmerkilega í grein, sem heitir »1
verinu«, eftir Odd Oddsson (Eimr. 1923). Eg nefni þessi
atriði að eins til dæmis, en eflaust mætti sýna ýmislegt
fleira af þjóðlífi voru frá fyrri tímum á kvikmynd. Vrði
alt það, sem sýnt væri af sögulegum efnum, sér í flokk
á myndinni og gerð grein fyrir, frá hvaða tíma það væri.
Þá yrði og lögð rækt við að sýna náttúru landsins
sem bezt frá öllum hliðum.
Slík mynd af íslenzkri náttúru og þjóðlífi hefði mikið
hlutverk að inna. Undirbúningur hennar hefði í för með
sér rannsókn og vandlega íhugun á hverju því atriði, er
taka ætti á myndina; til þess að alt yrði sem fullkomn-
ast, yrði alt, sem mennirnir eiga þátt í, lagað og æft
eftir föngum, eins og þegar verið er að undirbúa sjón-
leik eða íþróttasýningu. Afleiðingin yrði sú, að myndin
sýndi beztu fyrirmyndir, er kostur væri á, fyrir hvert
verk eða íþrótt, sem unnið er hér, og gæti þar með
orðið ágætur skóli fyrir allan almenning, enda ætti
hún að ganga um land alt, unz hún væri hverju manns-
barni kunn. En jafnframt mundi hún fara víðs vegar út
um heim og fræða erlendar þjóðir um land vort og
þjóð, sýna hvort tveggja í sinni fegurstu mynd, en það
yrði aftur hvatning fyrir þjóð vora til að verða sem
2