Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 91
Andvari
íslendingar mældir
89
lengst er milli mjaðmarkamba (crista iliaca). Breiddarmál
Islendinga og Þrænda voru:
Islendingar Þrændur
Axlabreidd . . . 22,5 °/o hæðar 22,3 °/o hæðar
Mjaðmabreidd . 16,6— — 16,6— —
Brjóstmál. . . . 50,1— — 50,5— —
Mittismál .... 43,4— — 43,9— —
Mjaðmabreiddin er þá algerlega hin sama á báðum
þjóðum, en Islendingar lítið eitt herðabreiðari, ef því
má treysta að eins hafi verið mælt. Aftur eru Þrændur
dálííið þreknari yfir brjóstið og mittisgildari. Munurinn
er að vísu lítill, en eftir tölunum ‘að dæma er vöxtur
Islendinga fullt svo ásjálegur sem Norðmanna að því
Ieyti, að þeir eru Iítið eitt herðabreiðari og miftismjórri,
en Norðmenn hafa það fram yfir oss, að brjóstið er
nokkru betur þroskað á þeim. petur þetta ef til vill
stafað af líkamsæfingum hermannanna, sem mældir voru.
4. Útlimir.
A handleggjum og höndum voru aðalmálin þessi:
íslendingar Þrændur
Upparmslengd.............19,2°/ohæðar 18,9°/ohæðar
Framarmslengd............14,7— — 14,7— —
Handarlengd..............11,0— — 11,1— —
Lengd handleggs og handar 44,9— — 44,7— —
Handarbreidd............. 5,1— — 5,2— —
Faðmsbreidd............ 104,0— — 103,6— —
Helsti munurinn er hjer á upparmslengdinni, en hún
er erfiðasta málið að taka og óvíst hvort hann stafar
ekki af mismundandi merkingu á mælipunkti. Framarms-
lengdin er hin sama á báðum og lítill munur á allri
lengd handleggs og handar. Þá er faðmsbreidd Islend-
inga nokkru meiri en Norðmanna, en aðgætandi er, að