Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 87
Andvari
íslendingar mældir
85
en það má að þeim finna, að það voru skólanemendur,
sem mældir voru. Þó tekur þetta ekki til Isfirðinga,
sem D. Sch. Thorsteinson mældi. Vfirleitt benda allar
mælingarnar til þess, að Islendingar sjeu hávaxnir, en
óyggjandi vissa um meðalhæð þeirra fæst aðeins við
nýjar mælingar um land allt á fólki upp og ofan.
Fróðlegt væri að vita meðalhæð manna í hverri sýslu,
en ekki verður það sjeð með neinni vissu af mínum
mælingum, því til þess þyrfti að mæla hálfu fleiri en
jeg gerði. Aftur er líklegt, að meðaltöl landsfjórðung-
anna sjeu nærri lagi. Þau voru þessi (962 karlar 20—
50 ára):
Suðurland Vesturland Norðurland Austurland
Tala mældra . . 489 177 239 57
Meðalhæð . . . 173,79 173,25 173,32 172,99
Það er lítill munur á fjórðungunum eftir þessum töl-
um, en þó eru Sunnlendingar nálega 1 cm. hærri en
Austfirðingar. Því er þó varlega treystandi, að Austfirð-
ingar sjeu svo lágir, því fáir voru mældir af þeim. Vfir-
leitt eru allar suðursýslurnar hávaxnar, en flestar hinar
nálægt meðaltali landsins eða fyrir neðan það.
Hæð manna fer töluvert eftir atvinnuvegum erlendis,
en þar skiftast stjettir og atvinnugreinar miklu skarpar
en hjer gerist, og er því ekki að vænta, að munurinn
sje eins mikill hjer. Jeg hefi ekki mælt svo marga menn,
að þetta verði sjeð til hlítar, en sje skift í 4 flokka eftir
stjettum eða atvinnuvegum, verður útkoman á þessa leið:
1) Námsmenn og embættismenn 174,7 cm.
2) Bæjabúar (fæddir í bæjum) . 174,6 —
3) Sjómenn..................... 173,4 —
4) Sveitamenn.................. 173,2 —
Eftir þessu eru þá lærðir menn og bæjabúar hæstir,
en sveitamenn lægstir, og lætur það líklega nærri lagi,