Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 86
84
íslendingar mældir
Andvari
er vafalaust, og tala mannanna, sem mældir voru, er
svo rífleg, að tilviljun ætti ekki að ráða miklu. Manni
dettur þá fyrst í hug, að jeg hafi einkum mælt hávaxna
menn, en ekki getur þetta átt við skólanemendurna, því
þeim voru mældir upp og ofan. Meðalhæð þeirra og
skólagenginna manna var 174,7 cm. eða nokkru meiri
en meðaltalið, svo þeir menn, sem jeg valdi sjálfur,
hitti á götunni o. þvíl., eru einmitt lægsti flokkurinn.
Eigi að síður eru líkindi til þess, að hæð sú, sem jeg
fann, fari eitthvað fram úr sönnu meðaltali í landinu,
því mikill hluti mannanna voru skólanemendur eða
mentamenn, en þeir eru ætíð nokkru hærri en almenn-
ingur. Þannig fann Halfdan Bryn, norskur mannfræð-
ingur, að stúdentar, verkfræðingar og námsmenn f Oslo
voru 175 cm. á hæð, en meðalhæð nýliða þar var að-
eins 172,16 cm. Svo mikill er þó ekki munurinn hjá
mjer á lærðum mönnum og almenningi.
Útlendu meðaltölin, sem jeg hefi tilfært, eru tekin
eftir hagskýrslum þessara landa um hæð nýliða á ár-
unum 1920—’24. Aðgætandi er, að þeir eru ekki full-
vaxnir (um 21 árs) og Halfdan Bryn gerir ráð fyrir, að
þeir hækki síðar um 1,8 cm. Eftir því ættu fullvaxnir
menn í Noregi að verða 173,4 cm. eða hjer um bil
jafnháir Islendingum. Eftir mínum mælingum var mun-
urinn á mönnum á nýliða-aldri og fullorðnum aðeins
0,5 cm.
Ef nú er litið á, hvaða meðalhæð aðrir hafa fundið
á undan mjer, þá var hún þessi:
Pálmi Pálsson (1901 — 12) 182 menn 20—28 ára 172,47
D. Sch. Thorst. (1910—12) 272 — 20—48 — 172,67
Páll Jónsson (1913—14) . 67 — 20—33 — 172,72
L. Ribbing (1912)......... 54 — 17—34 — 173,80
Mikill er ekki munurinn á þessum tölum og mínum,