Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 95
Andvari
íslendingar mældir
93
mælt höfuðlag íslendinga á undan mjer, nefnilega próf.
L. Ribbing. Hann fann sömu tölu og jeg.
2. Andlitsmál voru þessi:
íslendingar Þrændur
Ásjónulengd1)............... 18,93 cm. 19,12 cm.
Andlitslengd................ 13,01 — 12,5 — (12,03)
Andlitsbreidd............... 14,06 — 13,9 (13,38)
Andlitslengdar-breiddartala 92,69 89,91 (89,87)
Breiðleitir (euryprosóp) . . 3,7 o/o 16,8 o/o (11,5)
Meðalleitir (mesoprosóp) . 15,8 — 24,4 — (21,5)
Langleitir (leptoprosóp) . . 80,5 — 58,8 — (67,0)
Eftir tölum þessum að dæma er ásjónulengdin mjög
lík á íslendingum og Þrændum og einnig er munurinn
lítill á andlitsbreiddinni. Sá litli munur, sem um er að
tala, fer þó í þá átt, að Islendingar sjeu heldur breið-
leitari og þykir mjer ekki ósennilegt, að þetta fari nærri
rjettu lagi. Sje aftur miðað við andlitslengdina, snýst
þetta við og Islendingar eru þá miklu langleitari og
mun flestum þykja það ólíklegt, sem þekkja báðar þjóð-
irnár. Sennilega stafar þetta af því, að einn mælipunkt-
urinn (nasion, nefsaumurinn) er ekki ákveðinn á sama
hátt hjá okkur Bryn. Er það nóg til þess að gera málin
lítt sambærileg. Það kemur hjer fram sem víðar, að
mælingarnar eru vandaverk og því varlega treystandi,
að tveir menn mæli á sama hátt, þó þeir þykist fara
eftir sömu mælingareglum. Mjer er þó nær að halda,
að mælingar mínar sjeu nærri rjettu lagi, því jeg hafði
stranga gát á andlitsmálunum, en til fullnustu verður þó
ekki úr þessu skorið nema með nýjum mælingum.
Menn af hreinu norrænu kyni eru mjög langleitir og
1) Asjónulengd (fysiogn. andlitslengd) neftii jeg lengdina frá
neðri kjálkabrún upp í hársrætur, en andlitslengd frá kjálkabrún
upp að saumnum milli nefbeins og ennisbeins.