Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 143
Andvari
Ferð til Vatnajökuls og HofsjöUuls
141
skemmtilegustu ferð með jöklinum. Farið er þar með
fram mörgum fornum jökulurðum, þöktum fjölskrúðug-
um gras- og þlómaþeðum. Smátjarnir lágu inn í milli,
og alstaðar var hjer mikið um fugla. Hvað eftir annað
voru jökulkvíslar á leið vorri, er klufu sundur jökul-
urðirnir, margar álmur úr Mikla-, Múla- og Arnarfells-
kvíslum. Varð þar vandlega að velja vöðin, til þess að
Iromast hjá sandbleytu. Samt tóku lausu hestarnir stund-
um sund fáeina metra frá okkur, ef það datt í þá að
fara sína leið. Verst var höfuðáin í Arnarfellskvísl, sem
kemur út úr króknum við Arnarfell, undan jöklinum,
um op mikið, sem líkist hliði, með drynjanda nið. Hún
tók meir en í miðjar síður, var dýpri en Þjórsá og
straumharðari, en tiltölulega stutt bakka í milli. Við fór-
um samtals yfir meira en 20 slíkar kvíslar, ýmist stærri
eða minni.
Hlíðarnar á Arnarfelli hinu mikla voru skreyttar und-
urfögru gras- og blómaskrúði, er Ijómaði í sólskininu í
alls kyns litbrigðum, gulum, rauðum, bláum og lilju-
hvítum:
Fífilbrekha, gróin grund!
grösug hlíð með berjalaulum!
Af blómjurtum sá eg m. a.: Grávíði (salix g/auca), gul-
víði (s. phylicifolia), sóleyjar (ranunculus acer), jökla-
sóleyjar (r. glacialis), blágresi (geranium silvaticum),
munablóm (myosotis arvensis), blóðrætur eða burniræt-
ur (3: svæfla, crhodiola rosea), maríustakka (alchemilla),
lokasjóði (rhinantus crista-galli), geldingahnappa (armeria
vulgaris), sortulyng (arctostaphylus ura ursi), hvannir
(archangelica), fífla (taraxacum), tún- eða vallarsúrur
(rumex acetosa) og ef til vill einnig ferlaufasmára (paris
quadrifolia). Af grasi og hálfgresi voru ýmsar tegundir,
fífa, stör o. s. frv. Af fuglum urðum við varir rjúpuhjóna