Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 93
Andvari
íslendingar mældir
91
þá reynist vöxtur þeirra og stærðarhlutföll mjög hin
sömu og fundist hafa í Noregi. Þeir sverja sig auðsjá-
anlega í ættina. Og ekki verður þess vart, að þúsund
ára harðrjetti og kúldur hafi komið neinni korku í
íslenska kynið.
B. Höfuðmál.
íslensku höfuðmálin, sem hjer eru tilfærð, eru af full-
orðnum mönnum 20—40 ára, því þau breytast lítið frá
nýliðaaldri og til fertugs.
1. Kúpumál voru þessi:
íslendingar Þrændur
Kúpulengd..............19,73 cm. 19,22 (19,11) cmd)
Kúpubreidd............ 15,41 — 15,28 (14,84) —
Kúpuhæð................12,61 — 13,10 (12,35) —
Lengdar-breiddartala . . 78,13 — 79,76 (77,45) —
Hjer er töluverður mismunur á tölum og ýmislegt
við þær að athuga. Bæði lengd og breidd höfuðkúp-
unnar er meiri á Islendingum en Norðmönnum, en
kúpuhæðin aftur mun minni en á Þrændum. Lengdar-
og breiddarmálin eru eflaust mæld á sama hátt í báðum
stöðum, svo hjer er um áreiðanlegan mismun að ræða.
Oðru máli gegnir um kúpuhæðina. Hana höfum við
Halfdan Bryn ekki mælt algerlega á sama hátt og er
því ekki fyllilega að marka mismuninn. Jeg gæti trúað
því, að Bryn hafi mælst hæðin öllu meiri á Þrændum
en hún er í raun og veru, sjerstaklega þegar honum
hefir reynst kúpuhæðin austanfjalls minni en á Islend-
ingum. Sennilegast virðist mjer, að höfuðkúpan sje ekki
verulega hærri á Þrændum en oss, þó ekkert verði
1) Tölurnar í svigum eru sömu mál á Upplendingum, austan
fjalls í Noregi.