Andvari - 01.01.1926, Side 102
100
Ferð til Vatnajökuls og Hofsjökuls
Andvari
fjallið. 5. júlí 1924 fórum við Sigurður Eggerz, fyrrum
ráðherra, og eg í bifreið frá Reykjavík, kl. 2 um dag-
inn. Komum við að prestsetrinu Fellsmúla kl. 9 að
kveldi; þar fengum við hesta og riðum af stað þaðan
kl. 11, í þeirri von að ná Heklutindi í björtu veðri,
áður en skýjarák færðist yfir frá norðurrönd himins.
Atium við þar dýrlega ferð að næturlagi, áðum í yndis-
legum stað, Hraunteigi við Rangá, og komum nálægt
kl. 3 um nóttina að Hestvörðu. Sú varða liggur við eina
hraunálmuna eftir eldgosið 1846; er það apalhraun, ófært
hestum. Héldum við síðan áfram gangandi, hvíldarlaust,
og komumst á hátindinn kl. rúmlega 5 að morgni; var
þá glaðasólskin og afbragðs-skyggni um allt Suðurland.
Snælöndin austur eftir, til Vatnajökuls, voru með rákum
og flekkjum, því að snjó hafði þá tekið úr hlíðum.
Lengst í austri sá á jökulinn sjálfan, skjallhvítan. I
norðri, í skýjarofum, sást að eins mót af Sprengisandi
og jöklum. I vestri naut ekki skyggnis vegna skýja.
Slíkt dásamlegt útsýni var full laun fyrir ferðina, þó að
hröð væri, 15 stundir óslitið frá Reykjavík. Og er vér
komum aftur til Fellsmúla, var Hekla orðin hjúpuð
skýjakápu, eins og hún hafði verið allan daginn fyrir;
fylgdi þar raun nafni.
Rúmum hálfum mánuði síðar fór eg af nýju nokkurar
ferðir frá Þingvelli, ásamt Matthíasi Þórðarsyni og ferða-
mönnum tveim úr Vesturheimi. Vér fórum frá Þingvelli
um dagmálabil, riðum Hofmannaflöt, yfir Goðaskarð,
austur eftir Eyfirðingavegi hinum forna, og komum að
rótum Skjaldbreiðar nálægt kl. 2. Riðum vér þá upp
eftir fjallinu eina stund, héldum síðan áfram fótgangandi
í mikilli þoku upp á efstu brún. Nálægt kl. 5 rak af
þokuna, og blasti þá við í dýrlegasta útsýni allt Suður-