Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 46
44
Um skólafyrirkomulag í nokkrum löndum
Andvari
bandi þeirra við æðri skóla, svo og æðri skólunum með
vissum takmörkunum, enda bera fylkin allan kostnað af
þessum skólum. Barnaskólar og framhaldsskólar eru oft
samskólar fyrir drengi og stúlkur. Sem sýnishorn skóla-
fyrirkomulagsins og sambands lægri skóla við æðri skóla
hef jeg á sjerstöku blaði sýnt tilhögunina í Zúrich, og
að því er til æðri skólanna kemur, líka í Bern og Genf.
Til skýringar skal þetta tekið fram:
I Ziirich eru 8 ára barnaskólar og starfa þeir á ári
hverju í 43 vikur. Eftir 6 ára nám í þeim fara börnin
í hina almennu framhaldsskóla (Sekundarschulen) eða í
undirdeild lærða skólans (Progymnasium). Þau, sem eftir
verða, einkum tornæm börn, hafa 2 ára framhaldsnám í
barnaskólanum (Oberschule), og er fræðslan sniðin þar
mjög eftir þeim störfum, sem börnin ætla fyrir sig að
leggja. Þeir nemendur, sem fara í hinn æðri skóla (Kan-
tonschule) hafa 6V2 árs viðbótarnám til stúdentsprófs,
tvö fyrstu árin í óskiftri undirdeild (Progymnasium), og
41/2 ár í yfirdeild lærða skólans (Gymnasium), er skift-
ist í tvent: fornmáladeild (Litterarabteilung) og mentadeild
(Realabteilung). I hvorri þessara yfirdeilda eru skyldu-
námsgreinir samtals 31—34 á viku, en auk þess er gef-
inn kostur á aukanámi í nokkrum greinum. I fornmála-
deild (2+4V2 ár) eru vikustundir þessar: Þýska 23, lat-
ína 42 (byrjar með 8 stundum í 1. bekk), gríska 31
(byrjar í 3. bekk, eiginlega 1. bekk fornmáladeildar),
franska 21, saga 17V2, landafr. 7, náttúrufr. 9, eðlisfr.
6V2, efnafr. 4, stærðfr. 25V2, söngur 3, skrift 2 (i neðsta
bekk), teikning 9, leikfimi 13. í mentadeild (Realabt.)
(2 + 4V2 ár) er stundafjöldinn þessi á viku hverri: Þýska
23]/2, latína 35, franska 25, enska 111/2 (byrjar í 4. bekk),
saga 17V2, landafr. 9J/2, náttúrufr. 12, eðlisfr. 9, efnafr.
6, stærðfr. 33V2, söngur 3, skrift 2, teikning 13, leik-