Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 62
60 Um skólafvrirkomulag í nokkrum löndum Andvari
I ,
skólar með latínu og grísku og 322 með latínu, sam-
tals 837 skólar, en af hinum 505. Þó er um það talað,
að latínulausu skólunum aukist fylgi, að minsta kósti
um hríð. I Sviss virðist talsverður munur á forntungna-
námi eftir fylkjum. Þannig sagði rektor fylkisskólans í
Ziirich mjer, að miklu minni aðsókn væri nú að forn-
máladeild skólans (með latínu og grísku) en verið hefði
í ungdæmi sínu, er hann gekk þar sjálfur í skóla.
Hins vegar hef jeg í höndum skrá um nemendatölu
skólans í Bern árin 1880—1924 og hafa þar altaf verið
langflestir nemendur í latínudeild skólans. Arið 1880
voru t. d. nemendur í litterardeild 59, í realdeild 31 og
í verslunardeild 37, en 1924 var nemendatalan 322,
151 og 193.
Heimavistarskólar. I för minni sá jeg 4 stóra heima-
vistarskóla, er hafa nemendur til stúdentsprófs, og nokkra,
er hafa að jafnaði annað markmið og eru frekar upp-
eldis- en lærdómsstofnanir. Skóla þessa hef jeg áður
nefnt í skýrslu minni, en skal nú lýsa sumum þeirra
nokkru nánar, einkum ýmsri tilhögun.
Sumir skólarnir hafa öll heimavistarherbergin í 1 eða
2 húsum, en á öðrum stöðum eru mörg heimavistar-
húsin, og dylst mjer ekki, að sú tilhögun er miklu betri.
Þegar mörg eru húsin og tiltölulega fáir nemendur á
hverju heimili, verða kynni húsbænda og nemenda náin
og heimilisbragurinn eðlilegur og góður. Þá er um að
litast á hverju heimili líkt og á stóru og stjórnsömu
sveitaheimili hjá okkur. Komi gallagripur á eitthvert
heimilið, er hægara að halda í hemilinn á honum en
vera mundi á mjög fjölmennu heimili og minni hætta á,
að hann spilli öðrum, svo að eigi sje eftir tekið. Og á
milli heimilanna kemur upp að jafnaði nokkur sam-
keppni, allir vilja láta sitt heimili bera af öðrum. Mest