Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 82
80
Islendingar mældir
Andvari
]eg hefi nú drepið á það helsta, sem unnið hefir
verið að mannfræði Islands á vorum dögum, en í forn-
sögum vorum er og margt talið, sem að þessu lýtur.
Þannig segir Landnáma allnákvæmlega frá landnámi hjer,
hvaðan landnámsmenn komu, hvar þeir settust að og
um marga er sagt hver ætt þeirra var og stjett. Víða
er og að finna ágætar mannlýsingar, sem gefa furðu
glögga hugmynd um útlit manna og upplgg. Það er þó
ekki auðvelt að hagnýta sjer allan þann fróðleik í þess-
um efnum, sem fólginn er í sögum vorum, og þarf til
þess bæði allmikinn fróðleik, glöggskygni og varfærni.
Þó ekki sje um annað talað en landnámið, og aðeins
farið eftir Landnámu, þá er þar um margt að villast.
Það er ekki nóg að telja landnámsmenn í þrengri merk-
ingu, þá sem numu land og bygðu bæ. Börn þeirra,
konur, þjónustumenn og þrælar fluttust einnig til lands-
ins og juku hjer kyn sitt. Jeg hefi reynt að telja saman
alla innflytjendur, sem Landnáma getur um, og rjetti
Hannes Þorsteinsson þjóðskjalavörður mjer hjálparhönd
við það verk. Taldi jeg sem innflytjendur helming barna
þeirra, sem talin eru í Landnámu. Gætir þess þá að
nokkru, hve kynsælir menn voru, en það er ekki þýð-
ingarlaust í þessu sambandi, en auk þess fluttist fjöldi
barnanna inn í landið.
Niðurstaða mín var í fám orðum þessi:
Noregur. Frá Hálogalandi fluttust.............. 51
Úr hjeruðunum norðanfjalls .... 70
-----vestanfjalls..........237
-- Suður-Noregi................... 70
-- hjeruðunum austanfjalls........ 33
-- Noregi, ekki nánar tiltekið . . . 385 746
Svíþjóð......................................... 30