Andvari - 01.01.1926, Side 48
46 Um skólafyrirkomulag í nokkrum Iöndum Andvari
fimi 13. — í báðum deildum er kostur á aukanámi í:
kristinfr. 8, ítölsku 5, kórsöng 5V2, hraðritun 1'fe og
teikningu 4; auk þess í fornmálad. í hebresku 3 st. og
í mentadeild í bókfærslu 1 stund.
Þeir nemendur, sem fara í hinn almenna framhalds-
skóla, hafa þar 3 ára nám og geta að því loknu farið í
kennaraskóla (Seminar). Eftir 4 ára nám þar ljúka þeir
barnakennaraprófi. Hafa þeir þá að baki alls 13 ára
nám, og má af því marka, hversu vel Svisslendingar
vilja vanda til barnaskóla sinna.
Líka geta nemendur farið eftir annan eða þriðja bekk
framhaldsskólans yfir í iðnfræðaskóla (Oberrealschule eða
Industrieschule) eða verslunarskóla. Teljast þessir skólar
báðir til fylkisskólans (Kantonschule), þó að ekki hafi
þar nemendur nákvæmlega sama nám að baki eins og
nemendur í fornmáladeild eða mentadeild. I iðnfræðadeild
skiftist námið þannig: Þýska I8V2 st. saga 12, franska
19, enska 12, bókstafareikn. 12V2, flatarmálsfr. 14]/2,
bókfærsla IV2, flatarteikning (geometrisches Zeichnen)
4>/2, deskriptive Geometrie 6V2, eðlisfr. 8V2, eðlisfræðis-
æfingar 1, efnafræði 5V2, efnafræðisæfingar 2, náttúru-
saga 9, landafr. 5V2, fríhandarteikning 9, skrift 1, hrað-
ritun 2, leikfimi 11. Auk þessa kostur á aukafræðslu: í
kristinfr. 2, ítölsku 5, söng 3 stundir. — Deild þessi býr
aðallega undir iðnaðarháskólann (Technische Hochschule).
Loks geta nemendur eflir 2—3 ára nám í alm. fram-
haldsskóla farið í iðnskóla (Fachschule), og er námið
þar 3V2—4 ár.
Fyrir stúlkur er æðri kvennaskóli (Höhere Töchter-
schule). Hann hefur lokapróf framhaldsskólans að undir-
stöðu og skiftist í tvær aðaldeildir: verslunardeild (3 ár)
og aðra þrískifta deild: framhaldsdeild (3 ár), lærðan
skóla (4 ár) og kennaradeild (4 ár).