Vaka - 01.07.1927, Qupperneq 107
[vaka]
RITFREGNIR.
313
dcmsins Guð mun koma í ís. „Töluvert hefir sólin
hreyzt seinustu tíu mánuði“ (Philippe Soupault),
„og hráðum sortnar sólin
og sundrast jarðarleir.
Og þá verður allt að engu
og engin veröld meir“.
(Þórbergur Þórðnrsort).
Eg stend við gluggann minn, horfi út í þokuna og
spyr: Hvar verð ég um það leyti, sem sólin er kuln-
uð út, — ég, þessi skynjandi agnarögn af alheiminum,
þessi spyrjandi moldarköngull, þetta skjálfandi duft-
korn, hýði vanmáttarins, — hvar verð ég þá?“
„Hvað ætti að geta svalað sál minni? Ég leita i innstu
fylgsnum hugar míns; ég sný upp því, sem niður á, og
niður því sem upp á, velti öllu um koll eins og maður,
sem hefir tapað flihbahnappnum sínum innan um hús-
gögnin. Og ég finn ekki neitt, sem ætti að geta svalað
sál minni.
Excelsior — hærra? Nei, það er að eins nafn á gisti-
höllum og þvottadufti".
„Hinar dýpstu skynjanir fara gegnum sál mina eins
og reiðarslög. Jarðsagan, saga sólkerfisins, reynsla
mannkynsins, — allt streymir þetta gegnum veru mína
i augnabliksopinberun. Ég er spegilmynd af þroska
mannkynsins, af mikilleik þess og smæð, mæðu þess,
vizku og villu. Ég er sköpunarverkið sjálft í hryllileg-
um óttubjarma andvaka sjálfsvitundar. Ég get ekki sof-
ið; mig getur ekki dreymt; ég get ekki gleymt. Ég vaki,
sé, sé gegnum allt; ég er skygn; ekkert fær leynzt; ég
er allt, — alheimurinn fangelsi mitt; heimsendir blund-
ar í barini mér; ég er einn; ekkert er til nema ég, mátt-
vana hjóm; ég er þjáningin, — þjáningin sjálf, skelfing-
in — skelfingin sjálf; dauðinn — það er ég“.
Nokkrum mánuðum síðar deyr móðir Steins Elliða
suður á Ítalíu. Án þess að fregnin veki vott af söknuði i
hjarta hans, fylgir hann þó einhverri innri rödd og fer
suður lil að sjá gröf hennar. Honum er sagt hvernig
dauða hepnar hafi borið að. Hún hafði fengið blóðspýt-
ing meðan hún var að dansa „saklausan Charleston"
við ítalskan „vin“ sinn, sein ferðaðist með henni, hef-ð-
armann og heimsmann. Hann hafði borið hana inn i
hliðarherbergi, og þar gaf hún upp andann í örmum