Vikan


Vikan - 07.12.1967, Page 45

Vikan - 07.12.1967, Page 45
urlögum góðs máls. Á landinu sjálfu er annars orðin hliðstæð breyting. Hér var áður heim- kynni bændabýla, sem sómdu sér vel í landslaginu. Nú er þetta horfið og smekkleysið veður uppi. — Við minntumst áðan á von Kleist. Telurðu þig hafa orðið fyrir áhrifum frá fleiri erlend- um höfundum, utan Norður- landa? — Ég er mér þess ekki með- vitandi að hafa orðið fyrir bein- um áhrifum frá Kleist, hins vegar Rússunum ýmsum, eink- um Gorkí, sumum Frökkunum, og líklega í heimahúsum alda- vini mínum Steen Steensen Blicher — þó á nokkuð annan hátt — að ég hygg — en ég hef séð að sumir telja. — Hver var aðalástæðan til þess að þið hjónin fluttuð heim? — Við höfðum lengi haft þetta í hyggju, áttum og eigum heið- arskika þarna fyrir austan, sem líklega aldrei verður byggt á. Vorum raunar lengi búin að bíða eftir því að hafa efni á því að flytja heim. Bjartsýnin í þeim efnum (sem öðrum!) var yfir- gengileg. Eitt sinn lá meira að segja við að ég keypti Kolla- fjörðinn — á sextíu þúsund. En það var okurverð í þann tíð. Svo bauðst okkur Klaustur haustið 1938, gerðum boð í það, og því boði var tekið. Þá áttum við ágæta vini í næsta nágrenn- inu, þau hjónin á Hallormsstað, Benedikt Blöndal og Sigrúnu Pálsdóttm-, frænku mína. Bene- dikt varð úti upp úr áramótun- um — og söknuðum við þar vin- ar í stað. En Sigrún reyndist okkur drengur góður, svo sem hennar var von og vísa. — Ertu ánægður með ís- lenzkuþýðingarnar á þeim bóka þinna, sem skrifaðar voru á dönsku? — Þær eru sumar ágætar, aðr- ar upp og ofan. En málið á þeim er að sjálfsögðu ekki mitt tungu- tak, sem er austfirska. Að Kilj- an víða fer á kostum mun engan undra. — Þú komst honum nú líka á framfæri í Danmörku. — Ég þýddi Sölku Völku á dönsku. Hún kom aftur út í Trönubókaflokknum í fyrra- haust, loksins í heilu lagi, og tók ég henni þá tak hvað þýð- inguna snerti, en langar til að búa betur að henni næst. — Við minntumst áðan á Gorkí. Ég hef heyrt sagt að Fjallkirkjan sé undir sterkum áhrifum frá honum. — Já, það er ljóst. Þau áhrif koma þó fyrst og fremst fram í sniði bókarinnar. Þú nefndir áðan Fjallkirkjuna sem mitt að- alverk. Samt er það nú svo, að vegna tregðu Dana varð sagan styttri en ég upprunalega hafði ætlað. Ef til vill góðu heilli! Annað, sem snemma vakti fyr- Karlmaður óskar sér karlmannlegrar gjafar — þ'að hlýtur að vera uœ Eftir raímagns - rakstur Hár - krem Raksápu -krús Andlits r talkúm, Hár.-krem, Svita - krqrn 5HULTON • NEW YORK • LONDON PARIS Ath.: Höfum stofnsett eigið viðgerðarverk- stæði Krlstjánsson hff. Ingólfsstræti 12, Reykjavík - Símar 12800 og 14878. Sharp transistor útvarpsviðtæki hafa nú unnið sér traust fagmanna sem einhver traustustu transistortæki, sem komið hafa til landsins. — Eru samt ódýr. ir mér, var að endursegja ís- landssöguna. f þeim flokki sagna, sem hófst með Fóstbræðr- um, eru sögurnar Jörð, Hvíti- Kristur, Svartfugl og Jón Ara- son. Hver skyldi hafa ætlað að sú síðast nefnda yrði gefin út í Danmörku — á þrjátíu og fimm ára afmæli sínu — í tuttugu og sjö þúsund eintökum. Sjálfur hefði ég stungið upp á svona tíu—tólf, hefði ég verið spurð- ur. Bókin getur varla verið Dön- um sérlega ljúf lesning. En hún virðist hafa selzt fyrir kostnaði, og vel til að hún selj- ist upp áður lýkur. — Hver er þín helzta tóm- stundaiðja? — Aðallega skák. Taflmaður er ég þó ekki nema að áhuga. Ég hef gaman af að tefla upp góð- ar skákir. Tel það holla íþrótt sagnahöfundum. Og kann vel að meta spaugsemina hjá Emanuel Lasker, þegar hann sækir svarta kónginn ofan til sín og mátar hann með langri hrókun! Fyndni og djörfung í skák eru eigind- ir, sem eiga við mig. Við fáum okkur aftur í boll- ana og dreipum á fyrirtaks sérríi, sem Gunnar hefur borið fram með kaffinu. Mér verður að orði: Þú ert ekki bindindismað- ur. — Nei. Að vísu er vín víst að- allega fyrir gamalt fólk. Hvað landann snertir, er mér til efs að bann hæfði honum ekki bezt! Hér heima virðast aðeins fáir kunna með áfengi að fara, og ekki geta lært það. Vel til að það séu leifarnar af aldagamalli minnimáttarkennd. Kaupmanna- kúgun og fyrirlitning farmanna, sem kynntust þjóðinni frá henn- ar aumustu hliðum, og mátu hana þar eftir, kunna að liggja að baki. Þetta er ekki eldra en að ég gæti tilfært dæmi. Ann- ars er það svo um manninn, að honurn er aldrei háski búinn nema að innan — frá sjálfum sér. Jafnvel höfuðskepnurnar alræmdu eru meinlausar á við þann níðhögg, er nagar rætur hjartans. Eigi það fyrir mann- kyninu að liggja að farast í styrjöld, þá fremur það í raun réttri eitt allsherjarsjálfsmorð — og ástæðan einfaldlega sú, að það kunni ekki og lærði aldrei að fara með guðsgjafir Skaparans og hegða sér eins og vitvera — að ég ekki segi dreng- ur góður — á hnetti, sem — vel með farinn — hefði getað og ef til vill getur enn orðið velferð- arríki og skarað fram úr um unaðslega fegurð — einnig fag- urt mannlíf. En til þess þarf maðurinn vit- anlega fyrst og fremst að temja sér að fara með háskasamlega hluti hverrar tegundar sem eru, til gagns og gamans en ekki í gáskaflogum og grimmdaræði, svo sem allt of mörgum enn virðist tamast. VIKAN-JÓLABLAÐ 45
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.