Vikan


Vikan - 07.12.1967, Side 70

Vikan - 07.12.1967, Side 70
taka í sínar hendur öll farartæki, þar á meðal strætisvagnana. Þeir óku af ógurlegum hraða um göt- urnar, margir óvanir að aka bíl, enda var mikið um slys og marg- ir fórust þessa daga, Einn morg- uninn sá ég bíl sem lent hafði í hörðum árekstri og stóðu fern- ir skór kyrfilega á gólfinu. Menn- irnir höfðu henzt fram og upp úr skónum. Ég skildi ekkert hvernig þetta gat gerzt, en seinna hefur mér verið sagt að við harð- an árekstur leiti blóðið mjög upp líkamann um leið og hann kast- ast fram, og geti fæturnir auð- veldlega smokrast upp úr skón- um. Innan um allan þennan lið- safnað voru hreinir óaldarflokk- ar, og ómögulegt að gera grein- armun á her og óaldarflokkum, enda foringjarnir oft stórglæpa- menn. Frægastur þeirra var mað- ur nokkur sem kallaði sig anar- kista eða stjórnleysingja, en hann hafði verið á oddinum í einhverj- um glæpaflokki í Ameríku og fengið skipun um að verða af landi brott eftir langa fangelsis- vist. Nú man ég ekki lengur hvað hann hét. Þarna var hann orð- inn stjórnandi manna sem lík- ast til voru ekki glæpamenn, en hann notaði þá til alls konar glæpaverka. Stjórnin hafði engan aga á liði sínu, og var þá gripið til þess ráðs að festa upp tilkynningu á götuhornum um að allir vopn- aðir menn ættu að láta skrá- setja sig og lúta stjórn. Undir þetta skrafaði ekki aðeins stjórn- in heldur líka 8 menn aðrir sem töldust hafa mikil mannaforráð, foringjar fyrir syndikalistum, kommúnistum og anarkistum og hvað þeir nú hétu allir saman. Þessi óaldariýður réðist inn til manna sem álitnir voru hafa ein- hver peningaráð og kvaldi þá til að láta af hendi ailar sínar eigur og lausafé, og stundum drápu þeir þá á eftir. Oftast var það þó annar eða þriðji flokkurinn sem kom, sem það gerði, því að þá var ekkert orðið eftir til að stela. Ég þekkti marga menn sem hrepptu þessi örlög. Þarna voru 25 löggiltir umboðsmenn skipa- félaga, og 22 þeirra voru drepnir. — Svo fórst þú að hugsa til brottferðar. -—• Fyrst vildi ég hafa samband við danska sendiráðið í Madrid, því ég var starfsmaður þess. Ég reyndi í heilan dag að ná síma- sambandi, en það gekk ekki. Þeg- ar liðið var nokkuð á daginn eftir tók ég símslöðina að tali og út- skýrði fyrir afgreiðslumönnum að ég skyldi gjarnan tala á spænsku og biðja sendiráðsmenn að gera slíkt hið sama. Fékk ég þá samtalið umsvifalaust. Það var því auðséð að yfirvöldin vildu fylgjast með öllum sam- tölum úr bænum. Enska og am- eríska konsúlatið vildu líka hafa samband við sína menn í Madrid og sendu saman tvo bíla með reyndum mönnum. Var enski fán- inn breiddur á þakið á öðrum bílnum, en sá bandaríski á hinn. En þessir menn sáust aldrei síð- an, voru drepnir rétt utan við Barcelona. Spánverjar höfðu þann vana að skjóta strax ef þeir vildu stöðva fólk, og þótt- ust svo vera leiðir ef þeir hittu. Svo stóð á hjá okkur að við áttum von á enskum ritstjóra og konu hans þegar upp úr sauð, og fyrst héldum við að þau hefðu frestað förinni vegna styrjaldar- innar. En svo gerðist það einn daginn að bíl var ekið upp að húsinu, og stóðu sex vopnaðir menn á gargbrettunum, en þá voru bílar enn með gangbretti. Þarna voru þau komin í fylgd vopnaðra manna. Þetta hefur ver- ið um hádegisbilið á mánudegi. Á laugardagskvöld höfðu þau komið inn fyrir landamærin og ekki lesið frönsku blöðin um daginn, en í þeim var ferða- mönnum ráðlagt að fresta öll- um Spánarferðum í bili. Á sunnu- dagsmorgun lögðu þau af stað áleiðis lil Barcelona, og óku eft- ir korti. í einhverjum smóbæ þurftu þau að spyrja til vegar og kom á vettvang ung stúlka til að hjálpa þeim, en hún hafði varla kastað á þau kveðju er hún fékk kúlu gegnum höfuðið og datt dauð niður yfir bílinn. Þeim varð auðvitað heldur bilt við að sjá stúlkuna skotna niður við bílinn, og ekki leið þeim bet- ur er þau uppgötvuðu að þau voru óafvitandi komin inn á víg- völl þar sem barizt var af tölu- verðum ofsa. En þá sjá þau að menn standa í húsagöngum og benda þeim að koma. Var opn- uð fyrir þeim hurð á stóru húsi og þau óku rakleitt inn, en slík hlið eru ekki óalgeng á spænsk- um húsum gömlum. Þarna héldu þau til megnið af sunnudeginum þar til orrustunni slotaði. Dag- inn eftir var allt komið í ró og sex ungir menn með alvæpni tóku að sér að fylgja þeim til okkar. — Hvernig gekk að útvega nauðsynjar um þetta leyti? — Það gekk hálfilla, fór fljót- lega að bera á matvælaskorti. Bændur þorðu ekki með græn- meti til borgarinnar, og þar var ekki forði til langs tíma. - Var barizt mikið í borginni sjálfri um þetta leyti? — Já, það var mikil óöld, miklar viðsjár. Skærur blossuðu upp hingað og þangað, og mér þykir trúlegt að oft hafi sam- herjar borizt á banaspjót. Út um glugga okkar sást mikið klaust- ur, og einhverju sinni veittum við því athygli að menn lógu á maganum ekki langt frá klaustr- inu og skutu öðru hvoru á klaust- Þeita ðEassileoa sófasett Er unnið af dönskum og íslenzkum fagmönnum. Grindur eru danskar, framleiddar úrtekki og palísander. Glæsilegasta sófasettiS á markaðnum í dag. SKEIFAN - KJÖRGARÐI 70 VIKAN-JÓLABLAÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.