Vikan


Vikan - 07.12.1967, Qupperneq 81

Vikan - 07.12.1967, Qupperneq 81
þannig fram nú orðið, h|á okkur eins og víðast annars staðar, að tekinn er einn kafli eða einn þátt- ur í einu, stundum kannski bara tvær til þrjár senur. Svo er æft aftur á línu, síðan tekið upp, og þannig koll af kolli. Það geta farið tveir, þrfr dagar í upptökuna. Leik- stjórarnir eru að öllum jafnaði vand- virkir og harðir við sjálfa sig og ef þeim ekki líkar, er tekið upp aftur. Það getur margt komið fyrir. Mismæli eru algeng, en þá byrjar leikarinn bara setninguna aftur og svo má klippa mismælið burtu. En annað er mjög algengt, að „temp- óið", sem við köllum, fellur niður af einhverjum óskiljanlegum ástæð- um og það verður ótrúlegur seina- gangur á öllu. Þá segir leikstjórinn stopp, og byrjar upp á nýtt. Og skammar leikarana og keyrir þá áfram. Svo geta verið áhrifamikil atriði eða setningar, sem honum þykja ekki nógu áhrifamikil, sterk eða innileg. Fyrir því verður hann að vera mjög vel á verði; það get- ur haft úrslitaþýðingu. Ef ekki leik- arinn kemur með þetta frá sínum brjóststrengjum, þarf heldur ekki að gera sér vonir um, að það gangi hlustandanum til hjarta. — Nú hlýtur að þurfa nokkuð annað til að vera leikstjóri fyrir út- varp en svið. — Að sumu leyti. Það er sama að því leyti, að hann er til að hjálpa leikurunum til að móta þeirra karaktera. í grundvallarat- riðum er það hið sama fyrir leik- hús og útvarp. En svo kemur hin tæknilega vinna. Yfirsýn leikstjór- ans yfir sýningu, hún er aðeins fyr- ir leikhúsið, og hún kemur ekki til greina hér. Hann eins og hlustand- inn verður að nota sitt eyra. — Nú hef ég alltaf ímyndað mér, að ánægjan af því að leika væri að verulegu leyti af þeirri svörun — af því sambandi, sem verður milli leikara á sviði og áhorfenda úti í sal. — Það er rétt. — En þvi getur varla verið til að dreifa, þegar leikið er fyrir hljóð- nema. — Nei. Þessi gagnvirki straumur milli áhorfandans og leikarans, — hann er ekki til í útvarpi. Og þess vegna er svo miklu erfiðara að leika í útvarpi en í leikhúsi. — Er þá nokkuð gaman að leika í útvarp, meðan á því stendur? — Já, það finnst mér að minnsta kosti. Ég geri mér ekki almennilega grein fyrir þvl, en það er eins og maður byggi upp eitthvað [ staðinn fyrir það, sem maður missir úr leik- húsinu. Og svo er það þetta, að hvar sem einn leikari er; hvort heldur t lokuðu stúdíói eða á sviði fyrir full- um sal; ef honum heppnast að kom- ast inn f sitt hlutverk, samsamast þeirri persónu, sem hann á að tjá, þá er hann ekki lengur einn [ tómu rúmi. Þá er hann orðinn hin mann- eskjan og hinir leikararnir aðrar manneskjur og þarna er orðinn til annar heimur, aðrar kringumstæð- ur, það sem keppt er að, og leik- urinn heldur s!nu gildi þrátt fyrir að sambandið við áhorfandann vantar. Og samkvæmt kenningu margra góðra leiklistarmanna á maður ekki að hafa það alltof mikið á vitundinni í leikhúsi held- ur. Það á að vera meira skynjun en meðvitund. Það hefur einmitt verið fundið sumum leikurum til foráttu, að þeir léku á áhorfendur, og það þykir góðum leiklistarmönn- um slæmt. — Eftir þessari kenningu á leik- arinn að leika fyrir hlutverkið, ekki óhorfendur. — Já, sú leikaðferð sem oftast er viðhöfð [ íslenzkum leikhúsum er í því fólgin að leikarinn leiki sitt hlutverk án þess að ætla vísvitandi að hafa áhrif á áhorfandann. Svo er til líka aðferð sem miðar að al- veg því gagnstæða og kennd er við Bert Brecht. [ leikhúsum, þar sem mikið er um undirtektir áhorfenda, getur leikarinn orðið fyrir of mik- illi uppörfun frá áhorfendum, þann- ig að hann fari að gera annað hvort, undirleika eða yfirleika. En því er ekki að neita, að þessi at- mosfera, sem skapast í leikhúsi, hún er alveg sérstök og verður hvergi til annars staðar. En öll er þessi blessuð leiklist að heilmiklu leyti þjálfun og tækni, og það er ekki nema tiltölulega sjaldan, að leikarar eignast þess konar náðar- stundir guðanna, að geta flutt sitt hlutverk fullkomlega áreynslulaust og vel. Hin skiptin er þetta kann- ski meira barátta við taekni og brögð. — Nú hlýtur þú að lesa þó nokk- uð miklu meira af leikritum, en þú tekur til meðferðar. — O vertu blessaður, það er nú minn mikli höfuðverkur. Það er þessi óskaplegi lestur. — Ertu ekki búinn að koma þér upp sérstöku lagi til að hraðlesa? — Kannski er það nú. Annars er ég kannski ekki nógu laginn að finna nógu fljótt, hvort leikrit er bitastætt eða ekki. Ég hef oft rek- ið mig á, að af þessum hellingi út- varpsleikrita, sem ég fæ til lestrar, hef ég kannski kastað til hliðar verki, sem mér leizt ekki á eftir fyrstu blaðsíðurnar. En síðan upp- götvað að það var ágætis verk, en það kom ekki í Ijós fyrr en á leið, og endaði ef til vill sem hrein perla. Svo þess vegna erfiða ég oft án árangurs, og í það fer gífurlegur tími. Og því miður er það stað- reyndin, að ótrúlega há hundraðs- tala af því, sem ég fæ af svoköll- uðum útvarpsleikritum, er svo lé- legt, að það væri ekki til nokkurs VIICAN-JÓLABLAÐ 81 BEZTA ' HARLiTLiN i'A* — PIERRE ROBERT Institutde BeuutC* Herrc Robeit,36dluedu HubourgSaint HonorC,Paris. OG ílffl i [U1 T QUÍnl 1 It lil £ 11 fyrir yngri kynslóðina snsrtivörur Oculos Austurstræti 7 Karnabær Klapparstíg 37 Snyrtivöruverzlunin Lauoaveo 70 Notið það bezta! ERUM FLUTTIR í KIRKJUHVOL LMuii^r . . z/e? cMvn&rióhci ”
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.