Vikan


Vikan - 07.12.1967, Page 88

Vikan - 07.12.1967, Page 88
BÚSÁHÖLD LAUGAVEGI 59 SÍMI 23349 ENSKAR oostulíiisveagflísir ★ Úrvalið aldrei meira en nú. vfir 30 litir. ★ Verð hveroi haostæfSara. IITAVER SF. Gransósvegi 22 og 24 (hornl Mildubrautar). — Stmar 30280 og 32262. hafi á Malvólíó „einsog aqua vitae á yfirsetukonu.“ Þeir Bretar voru ófáir, sem þurftu á líkn og hjálp að halda í þann tíð, jafnvel þegar engu stríði var til að dreifa. Því þótt mikill og tígulegur ljómi hvíli yfir hinu viktoríanska Bretlandi, þá átti það sínar skuggahliðar og þær ljótar. Tillitslaus og óseðj- andi ófreskja kapítalismans gekk um lausbeizluð undir sauðar- gæru frjálslyndisstefnunnar — líberalismans — og saug merg og blóð úr alþýðu landsins. Kjör verkafólks voru víða beinlínis ægileg. Fáein ár voru liðin síð- an kartöfluuppskeran brást hjá írskum bændum með þeim af- leiðingum, að heil milljón þeirra dó úr hungri og álíka margir flæmdust úr landi til Ameríku. Hæpið er að brezk yfirvöld hafi nokkru sinni í allri sögu heims- veldisins farið verr með blá- menn eða Indverja en almúga síns eigin lands meðan vegur iðnbyltingarinnar og kapítalis- mans var mestur hjá þeim. Ekki var hér um að kenna vísvitandi mannhatri, heldur fyrst og fremst kæruleysi og nánast hálfvitalegu tilfinningaleysi gagnvart öðru fólki. Var hér um að kenna stjórnarstefnu þeirri, er auð- kennd hefur verið með frönsku orðunum laissez-faire, en inntak hennar var að þjóðfélaginu væri þá bezt borgið, er þegnunum væri gefinn laus taumur til athafna, en afskipti stjórnarvald- anna af þjóðarbúskapnum væru sem minnst. í þessu svartnætti hömlulauss auðvalds og viktoríanskrar trúar- hræsni var skyndilega tendraður kyndill svo bjartur, að margan sljóan og afturhaldssaman vana- þræl sveið ónotalega í augu. Það skeði einn af þessum sárasjaid- gæfu atburðum í mannkvnssög- unni: fram á sjónarsviðið kom persóna, sem kafnaði ekki undir þeim heiðri að vera maður gædd- ur hugsun og samvizku. „ÞAU HÖFÐU EKKI KLAKIÐ ÚT ÁLFT . . .“ Margt hefur orðið til að sveipa minningu Florence helgisagna- kenndum dýrðarljóma. Á síðari tímum hefur mönnum verið gjarnt að setja hana sér fyrir sjónir sem blíðskaparfullan, nær- gætinn engil, en sú mynd er al- röng. Florence gat að vísu brugð- ið sér í engilslíki, er hún sat yf- ir deyjandi hermanni, en sú Florence, sem barðist gegn neyð og fordómum heima fyrir og á vígvöllunum, var raunsæ kona og tillitslaus og nhumast kven- leg í þess orðs algengustu merk- ingu, enda munu slíks fá dæmi um konur, sem eitthvað hefur kveðið að. Hún var flugmælsk og hikaði ekki við að láta falta meinlegar athugasemdir, ef henni bauð svo við að horfa. Þannig talaði hún um Evgeníu, drottningu Napóleons þriðja, sem „keisaraynjuna, sem er sköpuð til að vera saumakona.“ Enda var sagt, að sviðið hefði undan bituryrðum hennar „eins og vélbyssukúlum.“ Erfiðleikalaust gekk það ekki fyrir Florence að hafa sitt fram gegn vilja foreldra og ættingja. Skapsmunir hennar voru ekkert smáræði og stundum hlupu þeir með hana í slíkar gönur, að stappaði nærri brjálæði. „Við erum eins og endur, sem hafa ungað út villlum svani,“ and- varpaði aumingja móðir hennar. „Vesalings konan hafði á röngu að standa", sagði Lytton Stra- chey, sem skráð hefur ævisögu Florence. „Þau höfðu ekki klak- ið út álft heldur erni.“ Svo kom Krímstríðið með öll- um sínum hneykslanlegu hörm- ungum. Florence hafði þá þegar getið sér mikið frægðarorð fyrir umbætur í hjúkrunarmálum heimafyrir, og nú fékk hermála- ráðherrann hana til að fara aust- ur með flokk hjúkrunarkvenna, ef þær gætu einhverju áorkað til að lina þjáningar hinna særðu og sjúku hermanna, sem bókstaf- lega voru án alls, sem hægt var að telja lil læknishjálpar og hjúkrunar. Helzta hersjúkrahús Breta var í Skútari, Litlu-Asíu- megin við Bospórus. Aðbúnaður- inn var þar svo hroðalegur, að Florence lét svo um mælt, að yf- ir hliði sjúkrahússins ætti að slanda sama áletrunin og á hurð- inni fyrir helvíti Dantes: „Þið sem gangið hér inn, gefið upp alla von.“ „VIÐ KYSSTUM SKUGGANN HENNAR . . .“ Þetta jarðneska víti varð fræg- asti starfsvettvangur Flórensu Næturgala. Hún krafðist hreinna sængurfata fyrir hina særðu — sú bón þótti mörgum virðulegum enskum heiðursmanni þá nánast lýsa blygðunarlausri frekju — reglubundinna máltíða, tyfja, hreinlætistækja. Allt þetta fékk hún um síðir, en næstum hver sigur kostaði heiftarlega baráttu við sljóa og afturhaldssama her- foringja, herlækna og skrifstofu- blækur. Hérna, í daunillum sjúkraskýlum í sóðalegri aust- rænni borg, varð til hin klass- íska mynd af Florence Nightin- gale. Hún varð það bjarg, sem fórnardýr stríðsins byggðu traust sitt á. Stilling hennar, ráðsnilld og atorka gerðu hana að gyðju í augum þeirra. „Því einu, að sjá hana ganga framhjá, fylgdi óum- ræðileg hughreysting,“ skrifaði einn hermannanna heim. „Hún talaði oft við einhverja okkar og brosti til margra fleiri. Hún gat auðvitað ekki brosað til altra, skilurðu. Við lágum þarna hundr- uðum saman. En við vorum van- ir að kyssa skuggann hennar, þegar hann leið yfir okkur.“ — Það gekk kraftaverki næst 88 VIKAN-JÓLABLAÐ hverju hún og hjúkrunarkonur hennar fengu áorkað. Fyrir komu hennar dóu fjörutíu og tveir af hverju hundraði hermanna, sem 'agðir voru inn á sjúkrahúsið. Á starfstíma „næturgalanna“, eins °g hjúkrunarsveit Florence var gjarnan kölluð, hjaðnaði dánar- talan niður í tvö prósent. Þakk- 'æti dátanna, sem áttu konunni ttieð lampann líf og heilsu að ^auna, verður ekki með orðum lýst, en allt annan hug báru til hennar þær skammsýnu rolur úr stélt embættismanna og herfor- 'agja, sem mest hafði sviðið und- an miskunnarlausum ádeilum hennar. „Hér austúrfrá er ekki einn einasti embættismaður," sagði Florence eitt sinn, „sem ekki myndi láta brenna mig á háli eins og Jóhönnu frá Örk, ef hann ætti þess kost. En þeir hora ekki að blaka við mér, því hjoðin stendur á bakvið mig.“ Þetta voru orð að sönnu, sem hetur fór. Oft er það svo, að al- hýða manna er heldur svifasein að átta sig á nytsömum nýjung- Utn, en það átti ekki við um hrezkan almenning við þetta taakifæri. Um Florence var sagt heima fyrir, að hún hefði ein ^anna getið sér æruorð í Krím- stríðinu. í þakklætisskyni var henni auðsýndur margs konar heiður, meira að segja gaf Vikt- oría drottning henni brjóstnál, skreytta brillíöntum. Hætt er þó V|ð að drottningin, þessi smá- srnugulega og þurfdrembna, flat- hýzka sveitakerling, hafi undir- niðri ekki verið sértega hrifin af heljunni frá Skútari, sem svo hhfðarlaust hafði brotið þær 'neginreglur hræsni og yfirdreps- 5kapar, sem fyrirfólk Bretlands hfði þá eftir — samkvæmt allra naðarsamlegustu fyrirmynd hennar hátignar. Keisarahlátur. Þegar Florence yfirgaf Tyrk- ^and, var hún niðurbrotin á sát ■)6 líkama. Þrátt fyrir að hún aefði áorkað miklu, gat hún ekki °snað við þá tilfinningu, að starf ■'ennar hefði misheppnazt að Verulegu leyti. Hún náði þó hárri -lH; lézt 1910. Reiði brezku þjóðarinnar 'egna óreiðunnar í stríðsrekstr- num varð líka til þess, að Aber- *°en lávarður sagði af sér em- >£etti forsætisráðherra og Palm- irston tók við. Skömmu síðar dó ^'kulás Rússakeisari, gagntek- nn vonleysi og bölmæði, en við °k sonur hans Alexander, hinn 'nnar með því nafni. Fáum mán- |ðum síðar dó Ragtan lávarður 'ks. Hann tók sér svo nærri 'ormungar þær, er hermenn •nns urðu að þola og hann með °ffu taldi sig bera ábyrgð á, að >ann lét hjá líða að leita sér aekninga gegn sjúkdómi, sem aSzt hafði á hann, og flýtti 'annig fyr|r dauða sínum. Þótt ‘ aufskur væri og illa gefinn, sýndi lávarðurinn þannig að minnsta kosti að hann var nógu mikill enskur séntilmaður til að deyja á réttum tíma. Bezti hershöfðinginn, er þátt tók í stríði þessu, var að öllum líkindum rússneski hervirkja- fræðingurinn von Todleben, sem stýrði vörn Sevastópól. Þótti hann sýna mikið hugvit og hreysti í því hlutverki. Honum átti eftir að skjóta upp í sögunni síðar, því að það var hann, sem stjórnaði liði Rússa og Rúmena í hinni frægu orrustu um Plevna, í stríði þessara þjóða við Tyrki 1877—‘78. Sagt er, að þegar Al- exandri öðrum keisara var for- talið að sú borg væri fallin Rúss- um í hendur, hafi sett að honum óstöðvandi hlátur, og þótti tíð- indum sæta, því jöfur þessi var alvörumaður mikill. Hætt er við að þegnum hans, sem í eldlín- unni stóðu, hafi ekki verið slík kátína í hug, en þetta dæmi er sjálfsagt aðeins eitt af mörgum um að ólíkur er skemmtismekk- ur landstjórnarmanna og undir- sáta þeirra. En í Sevastópól varð Todleben ekki sigursæll, þrátt fyrir allan sinn dugnað. Borgin féll banda- mönnum í hendur í september 1855. Auk Todlebens kemur mönnum gjarnan í hug annar Rússi, sem var í hinu umsetna liði. Hann pundaði þar á banda- menn úr fallbyssu, en á milli þess að hann þannig sá Flor- ence Nightingale fyrir verkefn- um, skrifaði hann Sögur frá Sevastópól, sem fyrstar ritverka hans vöktu á honum verðskuld- aða athygli. Hann hét Leó Tol- stoj. Friður var saminn i París vor- ið eftir. Helztu atriði samnings- ins voru þau, að siglingar á Dóná skyldu öllum þjóðum frjálsar, að Rússar mættu ekki halda úti her- skipaflota á Svartahafi og að Valakía og Moldavía skyldu heyra áfram undir Tyrkjasoldán, að nafni til að minnsta kosti. VEGIR DROTTINS. Ánægðastur allra styrjatdarað- ila var Napóleon þriðji. Vegur hans heima fyrir og raunar einn- ig út á við hafði vaxið allmjög við sigur þennan, þótt lítill væri og dýrkeyptur. Hann taldi sig nú hafa hefnt á Rússum þeirra ófara, er hinn mikli frændi hans fór fyrir þeim 1812. Til þess að auðmýkja þá sem eftirminnileg- ast, lét hann ráðherra sinn einn, er var óskilgetinn sonur Napó- leons mikla, undirrita friðar- samninginn fyrir hönd Frakka. Er mælt að Rússum hafi sviðið það tiltæki miklu sárar en ósig- urinn. sem breytti þó valdahlut- föllum á meginlandi Evrópu tálsvert þeim í óhag. Frakkland varð þar nú aflur voldugast ríkja og liélt þeirri aðstöðu unz Þjóðverjar sigruðu það 1870—’71. Bretar voru ekki eins ánægðir 7 BLAUPUNKT ÚTVÖRR OG ÚTVARPSFÓNAR Hagstætt verð. Hagkvæmir greiðsluskilmólar. Afslóttur gegn staðgreiðslu. Suðurlandsbraut 16 — Laugavegi 33 — Simi 35200 tveggja manna svefnsófar kr. 10,100 með tveim samstæðum stóium kr. 19.900 Sendum hvert á land sem er. Húsgasnaverzlunin BðslóO við Nóatún - Sími 18520 VIKAN-JÓLABLAÐ 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.