Vikan - 07.12.1967, Side 95
drykki þá ekkert sterkt. Það er
þitt verk Adrienne, og ég má
til með að segja að ég er ánægð-
ur með það. Það gerir ekkert
til með mína hálfpotta, en Martin
er of ungur og gáfaður til þeirra
hluta. Ég reyndi að gera honum
skiljanlegt, að hann væri á
rangri hillu, en hann er erfiður
oft og tíðum. Það varð að vera
kona sem kæmi honum á rétta
sporið. Hann varð djúpt hugsi
um stund og tók ekki eftir
augnagotum vinkvennanna.
— Konur eru merkilegar ver-
ur, hélt hann áfram. — Þær
verða ástfangnar af karlmönn-
um, vegna útlits, skapgerðar eða
einhvers dularfulls eiginleika, en
þær hafa ekki fyrr krækt í hann,
en þær byrja að breyta honum.
Þær hætta ekki, fyrr en þær
hafa mótað hann eftir sínu eigin
höfði og að lokum er ekki snef-
ill eftir af þeim manni, sem þær
upprunalega urðu ástfangnar af.
— Þú meinar þetta ekki í raun
og veru, sagði Adrienne. —
Þetta jafngildir því að halda því
fram, að allir menn séu vilja-
lausir og hafi ekkert bein í nef-
inu, séu í kvennahöndum eins og
mjúkt vax.
Læknirinn baðaði út höndun-
um. — Já, erum við það ekki?
Ég hef aldrei haldið því fram,
að konur séu hið veika kyn.
Martin hefur breytzt síðan það
rann upp fyrir honum, að þú
vildir eitthvað hafa með hann
að gera. f sama bili hringdi
síminn. — Ef það er til mín,
þá er ég ekki við, sagði hann við
gestgjafa sinn.
— Martha hefur fengið sín
fyrirmæli, róaði Adrienne hann
og brosti dauft. — Ef ég þekkti
þig ekki betur en svo, myndi
ég halda að þú værir harðsoðinn
níu-til-fimm-læknir, sem gefur
skít í sína sjúklinga.
— f kvöld svíkst ég um. f
augnablikinu er ekkert alvar-
legra í sveitinni en giktin í Dan
Lamberts, og hann hefur sjálfur
búið til jurtabakstur á sig síð-
ustu fimmtíu árin.
Dyrnar opnuðust og þau snéru
sér spyrjandi í átt til Mörthu.
Hún leit ákveðinn á dr. Spencer.
— Það er Tyson lögregluþjónn,
á lögreglustöðinni. Joe Hackett
gaf honum upp hvar þú værir.
— Hvað vill hann?
— Hann segir að þetta sé
mikilvægt og áríðandi. Hann
virtist órólegur. Það er í sam-
bandi við slys í nágrenni við
Shinglers.
— Sumir geta aldrei sýnt var-
kárni. Laugardagskvöld og allt
svoleiðis. Spencer ýtti stólnum
aftur á bak og snaraðist yfir
gólfið. Martha fylgdi á eftir
honum, sýnilega fegin að mega
hverfa.
— Við skulum fá okkur kaffi
frammi í forsalnum, stakk Julie
upp á. — Martha vill áreiðan-
lega komast til að taka til hérna.
'v j
Vikuþvottinn, lök, sængurver,
horðdúka, handklæði, kodda-
ver o. fl. o. fl. er nú hægt að'
strauja á örskammri stund.
Þér setjist við vélina slappið
af, látið hana vinna allt erfiðið.
Engar erfiðar stöður við strau-
horðið. Kenwood strauvélin
losar yður við allt erfiðið, seni
áöur var.
A stuttiun tíma komist þér upp
á lag með að strauja skyrtur
og aiman vandmeðfarinn þvott
vel og vandlega. l.ök, sængur-
ver og iiniuir stærri stykki er
hægt að strauja án allra vand-
kvæða í Kenwood strauvél-
inni, sem er með 81 cm valsi.
Þér gctiö pressað huxur, stífað
skyrtur og gengið frá öllum
þvotti í Kenwood strauvélinni
eins og fullkominn fagnaður.
Verð aðeins kr: 5.350.
Viðgerða- og varahlutaþjónusta
Jíekla
enwood strauvélin
Yður eru frjálsar hendur Sími 11687
við val og vinnu 21240
Klukkan er rúmlega níu.
Ardienne hafði sterkt hug-
boð um, að það væri eitthvað
meira en slys, sem hafði kallað
lækninn í símann. Þegar hún og
Julie komu fram í forsalinn, var
hann þegar kominn í frakkann.
— Það hefur fundizt konulík í
fljótinu við Harpers Mill, sagði
hann alvarlegur. — Tyson segir
að hún sé Ijóshærð, um þrítugt
og klædd hvíttri kápu. Grænum
Faser Voga hefur verið lagt á
brúnni. Þetta minnir sterklega
á konuna dularfullu, frá því
fyrr í kvöld, finnst þér ekki?
spurði hann Adrienne.
Hún beit sig í neðri vörina, og
fann að hún fölnaði. — Það get-
ur ekki verið hvíslaði hún mátt-
vana.
Læknirinn varð athugull á
svipinn. — Undarlegt. Þú virtist
hálf hrædd, þegar þú sást hana
niðri í þorpinu. Veiztu hver hún
er?
— Nei, mér hefur missýnzts,
svaraði hún fljótmælt. — Ég sá
hana ekki vel. Það var tekið að
skyggja. Ég sá ekki framan í
hana, en á bakið minnti hún mig
á ákveðna manneskju, sem ég
hef hitt.
Spencer kinkaði kolli, en hann
virtist hafa einhverjar efasemdir
um kunningsskap Adrienne við
þá konu. Hann hneppti frakkann
Hárkollur, 4 hárgreiðslur og litir
og háhælaðir skór í mömmuleikinn.
Leikfangaúrvalið er (
FÁFNfl
Klapparstíg 40,
sími 12631.
Allt ffyrir yngsflu kynslóðina
NÝJUNG
NÝJUNG
VIKAN-JÓLABLAÐ 95