Vikan - 05.12.1968, Síða 14
ftM* s-----------------------------------------------\ rfct''
Þótt svo að engin trygging sé fyrir því að fæðingu höfundar kristninnar hafi borið upp á þann tutt
sökum þess að heiðnir menn voru þá vanir að gera sér dagamun út af hækkandi sól, þá mun
arans, jólabarnsins. En allavega eru jólabörnin fleiri, þótt ekkert hafi til þessa hlotið meiri frægð.
kostum og ókostum þess að deila afmælisdegi með Frelsaranum.
Guðný Guðmunds-
dóttir, vistkona á
Hrafnistu, f. 1895:
í bernsku þótti mér þetta óvið-
kunnanlegt, jólin yfirgnæfðu
þetta alveg og það var ekki laust
við að mér þætti sem ég væri
prettuð um afmælið. En það
breyttist með aldri og þroska.
Raunar man ég ekki eftir að
hafa haldið upp ó afmælið
mitt nema einu sinni, það var
þegar ég varð fimmtug. Þá átti
ég heima á Siglufirði, þar sem
maðurinn minn, Jóhann Svein-
bjarnarson, var tollvörður. S(ð-
an ég flutti hingað á Hrafnistu,
hafa börnin og barnabörnin og
barnabarnabörnin, þau eru nú
þrjátíu og sex (eitt þeirra, María
Jóna, er með mér á myndinni),
alltaf litið inn á aðfangadag-
inn, bæði í tilefni jólanna og af-
mælisins. En lítið þýddi að reyna
að safna afkomendunum hingað
öllum í einu, því að nú á ég
áttatíu og þrjá á lífi, níu eru
dánir.
Aumingja barnið! sagði lækn-
irinn minn hérna fyrir skemmstu
þegar ég sagði honum hvenær
ég ætti afmæli. Oðru smáatviki
man ég eftir í sambandi við af-
mælisdaginn. Þá átti ég heima í
Hafnarfirði og fékk sr. Friðrik
Friðriksson til að skíra hjá mér,
einmitt á aðfangadag. Hann fór
þá að skrafa við dóttur mína
fimm ára, og spurði hvort hún
vissi hvað hefði skeð í dag? Jú,
hún hélt nú það, hún mamma
fæddist í dag, sagði hún.
Svo, sagði sr. Friðrik. En skeði
ekkert annað þennan dag?
Jú, svaraði telpan. Hann Jesús
fæddist líka.
Aðalbjörg Haralds-
dóttir, f. 1957:
Mér finnst það bara ágætt. En
til þess að það rekist ekki á jóla-
hátíðahöldin, held ég upp á það
einhvern annan dag, oftast milli
la og nýárs.
Gunnlaugur Jóhann-
esson, fiskimats-
maður, f. 1917:
Mér hefur alltaf fundizt það bæði
viðkunnanlegt og hátíðlegt. Börn
sem fæðast þennan dag eru al-
drei afskipt afmælisgleðinni.
Þetta kom sér ágætlega fyrir mig,
sem ólst upp í stórum systkina-
hóp. Það var aldrei nein hætta
á því að ekki væru hátíðahöld
á afmælisdaginn.
Katrín Guðrún Sig-
urðardóttir, skrif-
stofustúlka í IBM-
deild Loftleiða,
f. 1947:
Mér fannst það dálítið slæmt þeg-
ar ég var yngri; þetta vildi
gleymast í öllum jólaönnunum.
En núorðið er mér alveg sama.
Þegar ég var lítil, hafði ég þann
sið að halda upp á afmælið fjór-
um dögum seinna; þá var mesta
jólaumstangið liðið hjá en hins-
vegar nóg til af góðgæti frá jól-
unum í afmælisveizluna, svo að
lítið þurfti að hafa fyrir henni
sérstaklega. Þetta hafði því sfna
kosti. Síðan ég varð eldri hef ég
lítið hugsað um að halda upp á
afmælið, en það er aldrei að
vita hvað maður gerir í þetta
sinn — á aðfangadaginn kemur
verð ég nefnilega tuttugu og
eins árs.
14 VIKAN-JÓLABLAÐ