Vikan


Vikan - 05.12.1968, Qupperneq 24

Vikan - 05.12.1968, Qupperneq 24
kortinu á morgun. Hann ætlaði að skrifa henni. Hún hafði ekki kvatt hann, hún sagði: Við sjáumst síðar. En myndi hún svara bréfi hans? Hann hélt það. Þvílíkt lán að hún skyldi missa vasa- klútinn. Annars hefði hann aldrei komizt í samband við hana .... Snemma morguns var Val Dartie að leggja af stað frá sveitasetr- inu, sem hann. hafði leigt, í norðurhlíðum Sussex hæðanna. Hann var að fara á veðreiðar í Newmarket. Hann staldraði við í dyrun- um, til að kyssa konu sína að skilnaði. — Reyndu nú ekki of mikið á fótinn, Val, og stilltu þig um að veðja of hátt! Meðan Val fann ylinn frá henni i faðmi sér, fannst honum að bæði veiki fóturinn og peningaveskið væru öruggt. Og hann ætlaði að reyna að fara að öllu með gát. Holly hafði alltaf á réttu að standa. Honum fannst það ekkert skrýtið að hann, sonur Montys Dartie, hafði alltaf verið trúr konunni sinni, sem hann kvæntist í Höfða- borg fyrir tuttugu árum. Þar sem þau voru svo skyld, komu þau sér saman um að eignast ekki börn. Holly var auðvitað orðin rosk- in, en hún var ennþá grammvaxin og hárið, hennar mesta prýði, var ekkert farið að grána. — Jon kemur í dag, sagði Holly. — Og á laugardaginn getur verið að Fleur komi með þér, með lestinni klukkan 1.40. — Heyrðu, hefirðu hugsað um að Soames frændi og faðir þinn.... Er þetta ekki dálítið vandræðalegt? — O, hvorki Jon eða Fleur vita um þessar gömlu erjur. Og auð- vitað tölum við ekki um þær. Þau verða hér aðeins í fimm daga saman, Val. Val hló. — Þetta er svo furðulegt með fjölskyldu okkar? Soames frændi kvænist franskri stúlku og faðir þinn kvænist fyrri konu hans. Afar okkar og ömmur hefðu fengið aðsvif. — Það hefðu allir afar og ömmur líka gert, sagði Holly. Til að fyrirbyggja óþægilegar spurningar, sem ekki var svo gott að finna svar við, hafði Jon aðeins verið sagt: — Það kemur ung stúlka í heimsókn á laugardaginn, hún verður hér í nokkra daga. Af sömu ástæðu var líka sagt við Fleur: — Það býr ungur mað- ur hjá okkur. Þau voru því algerlega óviðbúin að hittast. Jon kom inn í stof- una úr björtu sólskininu úti, og varð svo dolfallinn yfir gæzku forsjónarinnar, að hann stóð eins og steinrunninn, og heyrði að Fleur sagði, ósköp róleg: — Góðan daginn! eins og hún hefði aldrei séð hann fyrr. Hún kastaði höfðinu eldsnöggt aftur á bak, og hann skildi á því, að hann mátti ekki láta það í ljós að þau höfðu hitzt áður. Hann hafði fataskipti og var fyrstur niður í dagstofuna. Nú var 24 VIKAN-JÓLABLAÐ Jo Forsyte hafði eytt 19 ára afmælisdegi sonar síns við að taka til í gömlum skjölum og einkabréfum sínum. Hann fór sér rólega að öllu, hann var orðinn veill fyrir hjarta, og það var með hann, eins og alla aðra í Forsytefjölskyldunni, hann fór vel með sig, hann hafði enga löngun til að deyja fyrir aldur fram, frekar en ættmenn hans. Dauðadómur vofir yfir öllum mannlegum verum, og Jo var bú- inn að búa svo lengi með sínum, að hann vildi heldur hugsa um önnur málefni. Þennan dag beindist hugur hans til sonarins. Jon varð 19 ára þennan dag, og hann hafði tekið ákvörðun um lífsstarf sitt. Fyrir nokkrum vikum kom hann til föður síns og sagði: — Mig langar til að snúa mér að landbúnaði, ef þú vilt kosta mig til þess. Jo hafði skrifað Holly Dartie, dóttur sinni og spurt hvort hún eða maður hennar þekktu ekki einhvern bónda, sem vildi taka hann sem lærling. Holly var mjög glöð yfir þessu og sagði að þau ættu prýðilegan nábúa, sem örugglega tæki hann til sín, og þau hjónin, hún og Val, yrðu himinlifandi ef hann vildi búa hjá þeim. Og á morgun átti drengurinn að fara til Sussex. Um kvöldið kom Irene inn í svefnherbergi manns sín og settist við gluggann. — Þú getur aldrei gizkað á hvern ég sá í dag, Jo. Soames! Soames! Jo hafði forðast minningar um þann mann í mörg ár, hann þoldi ekki einu sinni að hugsa um hann. Og nú fann hann hjartað taka kipp. Irene hélt áfram: — Hann og dóttir hans voru á málverkasýning- unni í Cork Street, og þau töluðu við margt fólk þar. Á eftir rák- umst við svo aftur á þau, á veitingastofunni, þar sem við Jon feng- um okkur te. Hann er að vísu orðinn gráhærður, en annars lítur hann út eins og fyrir tuttugu árum. — Og dóttirin? — Hún er ljómandi lagleg. Að minnsta kosti fannst Jon það. Aftur fékk hann kipp í hjartað. — Þú hefir vonandi ekki....? — Nei, en Jon veit vel hver þau eru. Stúlkan missti vasaklútinn sinn og Jon tók hann upp. Þetta var allt eitthvað þvingað og undar- legt, og það fór ekki hjá því að Jon tæki eftir því. Jo saup hveljur og sagði: — Ég hefi oft husgað um það hvort ekki er rétt að setja hann inn í þetta. Hvað hefir þú sagt honum? — Að þau séu skyldfólk þitt, en að við þekkjum þau ekkert. Það getur verið að Jon spyrji þig um þetta núna .... Jon lá vakandi á herbergi sínu, fullur tilfinninga, sem hann hafði aldrei gert sér grein fyrir. Þetta hlaut að vera það, sem kall- að er ást við fyrstu sýn. Fleur, nafnið eitt var sem hljómlist. Hún bjó í Mapeldurham, einhversstaðar upp með ánni. Hann hlaut að geta fundið það á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.