Vikan - 05.12.1968, Blaðsíða 78
B Ú S L jr 0 Ð
LUXOH LUXOR
PÓSTSENDUM MYNDIR OG VERÐ-
LISTA.
B Ú S L jr 0 Ð
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN — SÍMI 18520
1/2 lítri köld mjólk
1 ROYAL búðingspakki.
Hrœrið saman.
Tilbúið eftir 5 mínútur.
Súkkulaði karamellu
vanillu jarðarberja
sítrónu.
héruð voru eins konar Síbería í
augum þeirrar tíðar Rómverja.
Átti Óvíð þar til æviloka dauf-
lega vist í borginni Tomi, sem
heitir nú Constanta og er í Rúm-
eníu. Sagði hann svo í bréfi til
vina sinna, að eina framleiðsla
þessa auma lands væru örvar,
sem villimannaþjóðflokkarnir á
sléttunum skytu á borgarbúa.
Grátbað Óvíð keisarann hvað
eftir annað að hleypa sér heim
frá þessari auðn, en við það var
ekki komandi.
Mikinn þátt í stuðningi keis-
arans við skáldin átti Mekenas,
aðalráðgjafi hans og mesti
tryggðavinur, annar af tveimur,
hinn var Agrippa hershöfðingi,
sem átti drýgstan þátt í hernað-
arsigri hans á Antoníusi. Meken-
as þessi var slíkur listavinur að
nafn hans hefur orðið að sam-
heiti á þannig mönnum síðan.
Hann var líka mannvinur slíkur
að einstakt var um Rómverja.
Eitt sinn var hann nærstaddur,
er Ágústus sat í dómarasæti;
hafði keisarinn þegar kveðið
upp dauðadóma yfir nokkrum
sakborninga þeirra, er leiddir
voru fyrir hann að því sinni, og
gerði sig líklegan til að láta það
ganga yfir fleiri. Mekenas skráði
þá nokkur orð á töflu og lét
færa keisara. Þar stóð skrifað:
„Hættu nú, böðuR!“ Ágústus lét
sér þetta að kenningu verða, en
nærri má geta hvort nokkrum
hefði þýtt að brúka svona
stólpakjaft við . eftirmenn hans,
til dæmis Neró.
Á engu hafði Ágústus slíka
andstyggð sem styrjöldum, enda
hlaut jafn glöggum og hégóma-
lausum manni að bjóða við þess
háttar asnaskap. Þó háði hann
nokkur landvinningastríð, fyrst
og fremst í þeim tilgangi að
skapa ríkinu örugg landamæri.
Hersveitir hans lögðu undir
Rómaveldi Mösíu (Norður-Búlg-
aríu), Pannóníu (vesturhluta
Ungverjalands), Nóríku (Aust-
urríki sunnan Dónár) ásamt
þeim svæðum sem nú eru Sviss
og Suður-Bæjaraland. Varð
Dóná þannig landamæralina rík-
isins frá upphafi til ósa. f þess-
um löndum bjuggu þrakverskar
þjóðir og keltneskar, sem Róm-
verjar áttu heldur auðvelt með
að bæla niður. Allt öðruvísi fór
þegar þeir reyndu við Germani.
Rómverjar höfðu hugsað sér að
brjóta undir sig lönd allt að
Saxelfi, en þannig hefðu landa-
mæri þeirra orðið miklu örugg-
ari en þau er síðar voru ákveðin
við Rín.
Árið 9 eftir Krist virtist þetta
takmark skammt undan. Róm-
verjar höfðu þá þegar lagt und-
ir sig mikinn hluta Norður-
Þýzkalands og Ágústus hafði
skipað yfir landið skattlands-
stjóra, er fullkomna skyldi verk-
ið. Sá hét Varus og hafði áður
verið landsstjóri í Sýrlandi.
Varus var treggreint meðal-
7S VIKAN-JÓLABLAÐ