Vikan - 05.12.1968, Síða 83
hvernig gagnrýnendur og menning-
arunnendur taka þessu núna, allt
ágætis menn, og allt unga flókið í
skólunum, að næstu 20 árin sjáum
við ekki út fyrir hlandkeröldin. Það
verður hinn nýi, íslenzki saloon.
Hin nýja, íslenzka Jósefína.
— Og það væri enginn bættari
með, að það yrði öðruvísi. Það er
höfuðatriði við allar listir, að menn
geri sér grein fyrir eðli þeirra, og
kunni að vinza það úr, sem er mik-
ils metandi. Og margt það, sem
skrifað er í bókum nú til dags, er
mjög gott. Og það er alls ekki rétt-
mætt að alhæfa það undir kúk og
piss. Hins vegar hafa menn til-
hneigingu til að gera það, af því
það er svo einfalt og þægilegt.
— Oneitanlega finnst manni, að
menningarvitar og gagnrýnendur
eigi ofan í skúffu hjá sér teikningu
af þvf, hvernig listaverk eigi að
vera, á hvaða sviði sem er.
— Þeir eiga ekki teikningu af
því. En það á alltaf að vera eins
og þeim hentar. Nú þurfa þeir að
rífa sig upp úr doðanum, þeir eru
búnir að skrifa um ákveðna menn
svo lengi, að það er ekki hægt að
skrifa meira um þá, og þá verður
að finna einhverja nýja. Það er
það, sem þeim hentar. Með gagn-
rýnendur hér, þeir eru andskoti
góðir margir hverjir, en einn hlut-
ur er dálítið leiðinlegur. Það er, að
sumir eru ákaflega miklir Skandi-
navar í sér, og til dæmis Svíþjóð er
fræg fyrir sveitamennsku í bók-
menntum. Suðurafríkuríki eru ekki
eins slæm. Þetta sést meðal annars
af því, að maður eins og Gunnar
Ekelöf skrifar Ijóðabók, og Ijóðin
eru ævintýri úr Austurlöndum. Þetta
er sænskur maður. Heldur hann, að
hann sé færari Austurlandamönn-
um, að yrkja Ijóð um Austurlönd?
Ætlar hann að selja þeim þessi
Ijóð? Er hann að yrkja þetta fyrir
þá? Eða fyrir hverja?
Ekelöf er ofurseldur þessum
ósköpum skandinavískra sveita-
manna, sem við höfum orðið svo-
lítið varir við á Islandi upp á síð-
kastið. Heimsbókmenntir eru bók-
menntir, sem skrifaðar eru í Skandi-
navíu um eitthvað austur í Kína.
Eða: Eining út af fyrir sig, sem svíf-
ur í loftinu án nokkurrar sérstakrar
einnar rótar. Ha? Þetta er einhvers
konar járnbrautarstöðvastemmning,
sérðu. Einhvers staðar í einskis-
mannslandi. Hefði Gunnar Ekelöf
skrifað ævintýri úr Vermalandi,
hefði ég viljað lesa þau. Hann þarf
ekki að segja mér neitt frá Austur-
löndum. Ég vil Austurlandamann til
að segja mér það.
En svo er meira að segja þetta
brotið. Núna í haust veitir Nóbels-
r.efndin Japana Nóbelsverðlaunin.
Ég hélt fyrst, að hann hefði þá
skrifað ævintýri frá Svíþjóð ( Jap-
an. Nei, nei! Þetta er Japani, sem
skrifar japanskar bókmenntir um
lókal japönsk efni, og er meira að
segja svo mikill Japani, að hann
var á móti ósigri Japana! Ég varð
alveg gáttaður. Hvað er komið yfir
akademíuna? Af þessu verður að
UiOarliillur é
feft m veoii
EIK
GULLÁLMUR
ASKUR
CAVIANA
LERKI
BEYKI
FURA
0REG0N PINE
TEAK
VALHNOTA
MANSONIA
HARDVIDAR^IAK sf.
Þórsgötu 13
Sími 11931 & 13670.
f ——--------------------------------------------------------------------------N
r
I desember heftinu eru m.a. þessar
greinar: Shelley og Mary Godwin, Bréf
Plíníusar, Þegar þefdýrið lyftir skottinu,
Nýbreytni í vaxmyndasafni Lundúna,
Edmund Hillary, Jarðarbúum fjölgar um
180.000 á dag, Elskulegu rósirnar mín-
ar, íslenzk heimsþekking á fyrri öld-
um, Lausn á gullkreppunni. Hinn rétti
Róbínson Crusoe, og bókin, sem er ævisaga Philip Blaiberg, og heitir Til síSasta hjartsláttar.
V___________________________________________________________________________________________,
PIRA-SYSTEM
HIN FRÁBÆRA N?JA
HILLUSAMSTÆBA ER í SENN
HAGKVÆM OG ÓDÝR
Það er ekki rnargt, seni hefur lækkað
í verði að undanförnu. Það hafa PIRA
hillusamstæðurnar gert sökum hagræð-
ingar og verðlækkunar í innkaupi. Nefn-
ið til livers þér þurfið hillur og PIRA
er svarið. Odýrustu bókahillur, sem völ
er á, hillur og borð í barnaherbergi, í
vinnuherbergi, í húsbóndaherbergið.
Sjáið myndina hér; þar er skipt á milli
borðstofu og stofu með PIRA-vegg.
Borðstofuskenkurinn sparast. PIRA
hillusamstæður geta staðið upp við vegg,
eða frístandandi á gólfi. Engar skrúf-
ur eða naglar til að skemma veggina.
Notið veggrýmið og aukið notagildi
íbúðarinnar. PIRA liillusamstæðurnar
, eru lausn nútímans.
HÚS OG SKIP h«.
Ármúla 5 — Sími 84415—84416.
VIKAN-JÓLABLAÐ 83