Vikan - 05.12.1968, Síða 95
tröllkonunaut í hendi; reið hann upp
með Blöndu og ó Vatnsskarð. Veður
var fjúkandi og færð þung. Reið
hann svo mikið að mælt 'er að
sprungið hafi annar eykurinn nó-
lægt Arnarstapa, en annar hafi
sprungið norðan við túngarð á
Silfrastöðum. Var þá mjög farið að
dimma af kveldi. Grímur kemur á
bæinn og hittir föður sinn. Verður
þar fagnaðarfundur. Gengur síðan
til skála og kastar reiðklæðum. Hann
sá heimafólk allt mjög hnuggið.
Grímur spyr vandliga að framferð-
um Skeljungs og var honum sagt
hann riði þar húsum flesfar nætur
úr þvi nótt er dimm; er nú því síð-
ur vært að jól eru í garð gengin;
áræðir enginn úti að vera eftir dag-
setur. Grímur gat að líta hvar uxa-
húð mikil lá, blaut og óskafin, af
þjór þeim er slátrað hafði verið til
jólanna. Grímur tók húðina og risti
af ólar þrjár allrammgjörvar. Síðan
gengur hann til suðurs frá bænum
og hefur í hendi spjótið tröllkonu-
naut, en í annarri ólarnar. Hann
gengur þar til hann kemur á hól
þann er verður skammt á brott suð-
ur með hlíðinni og kallaður er síð-
an Grímshóll. Hann litast um og sér
að mikill steinn stendur á sunnan-
verðum hólnum, aflangur, þykkur
mjög neðar, en upp þynnri, nokkuð
ámynt fornum blótsteinum. Grjmur
gengur að steininum og rennir þrjú
göt í gegnum hann með spjótinu
tröllkonunaut, dregur síðan í bor-
urnar ólar þær inar nýju og reið á
rennilykkjur og dró í æsar. Síðan
gekk Grímur heim; var þá slegið
upp jólaveizlu. Fögnuðu allir heima-
menn Grími, en þó mest faðir hans.
Leið svo á nótt fram. Síðan bað
Grímur alla menn til sængur fara
og var svo gjört. Húskarlar sváfu
í skála er lá úr norðanverðum and-
dyrum; voru þar rekkjur margar.
(Stóð sá skáli nokkur hundruð ár
síðan). Grímur lagðist niður í set-
ið er næst var dyrum og snaraði
yfir sig og undir uxahúðinni inni
nýju, lá svo léttklæddur og sá út
undan húðinni um höfuðáttuna. Ljós
brann í skálanum ið efra. Grímur
bað fólk ei æðrast þó kvatt yrði
dyra heimamannliga og engu gaum
að gefa. Væntu menn nú Skeljungs
með áhyggju ef hann héldi vana
sínum. Létu menn sem hljóðast og
leið svo á nótt fram. Eftir miðja
nótt heyrðu menn að gengið var á
húsin upp og riðið skálanum
óþyrmilega og barið hælum við
þekju svo brast í hvörjum rafti, gekk
það nokkra stund. Síðan var farið
ofan af húsum og kvatt dyra mjög
ramliga og síðan brotin upp hurðin.
Kom þá Skeljungur inn í anddyrið
og litast um. Snýr síðan til skálans
og treður sér inn um dyrnar og
gægist hann nú hvívetna. Húskarl-
ar létu ei á sér bæra og byrgðu sig
niður, svo voru þeir hræddir. Skelj-
ungur sér hvar nýkominn gestur
liggur í setinu fremst við þili. Ræðst
hann þar að og þrífur ( húðina er
Grímur hafði yfir sér. Grímur hélt
í móti og gekk því hvörgi. Skelj-
Henlugar jólagjafir
MeS jólakveðju.
Tfzkaverzlunin Guðrún
RauSarárstíg 1, sími 15077.
V_________________________________________________V
GreiSslusioppar í óvenju fallegu úrvali. Allar stærSir, margir litir,
verðiS hagstætt. Buxnadragtir frá Siimma í glæsilegu úrvali á tán-
inga og fullorSna. SíSbuxur og pils úr vönduSum ullarefnum. SíS-
buxur og vesti úr flaueli. Skemmtilegur og vinsæll heimaklæSnaSur.
Verið meS frá byrjun og fylgizt meS tízkunni. Síðdegis og kvöld-
kjólar. SíSir samkvæmiskjólar. SiS og stutt samkvæmispiis.
VerzliS hjá okkur fyrir jólin, hér eru næg bílastæSi, auðvitaS í hægri-
umferS. Strætisvagnar á fjölmörgum leiSum stanza rétt viS verzlun-
ina eða á Hlemmtorgi.
VIKAN-JÓLABLAÐ 95