Menntamál - 01.03.1955, Side 36
28
MENNTAMÁL
efnið er merkingarlausar samstöfur og setning úr Don
Juan.
Námsefni l.d. 2. d. 3. d. 4. d. 5. d. 6. d.
12 samst. 16,5 11,0 7,5 5,0 3,0 2,5 (meðalfj. endurt.)
34,0 55,0 70,0 82,0 85,0 (% sparað.)
24 samst. 44,0 22,5 12,5 7,5 4,5 3,5 (meðalfj. endurt.)
49,0 72,0 83,0 90,0 92,0 (% sparað)
36 samst. 55,0 23,0 11,0 7,5 4,5 3,5 (meðalfj. endurt.)
58,0 80,0 86,0 92,0 94,0 (% sparað)
1 setn. úr
Don Juan 7,75 3,75 1,75 0,5 0,0 0,0 (meðalfj. endurt.)
(um 80 samst.) 52,0 77,0 94,0 100,0 100,0 (% sparað)
Sú aðferð, sem beitt er við athugun á minni og fram
kemur á töflunni, er kölluð „sparnaðaraðferðin". í þessu
tilviki hefur efnið verið numið svo vel, að unnt er að fara
einu sinni með það villulaust. Síðan er prófað, hversu oft
þarf að fara yfir það að tilteknum dagafjölda liðnum til
þess að geta endursagt það einu sinni villulaust. Þá er
reiknað út eða mælt, hversu margar yfirferðir „sparast",
þegar efnið er numið að jöfnu marki síðar, miðað við
fjölda á yfirferðum fyrsta daginn eða í fyrstu lotunni.
FRAMVIRK OG AFTURVIRK NÁMSTÖF.
Afturvirk námstöf er eitt af því, er gefa þarf gaum,
þegar stundaskrá er tekin saman. Skýra má með einföldu
dæmi, við hvað er átt með afturvirkri námstöf. Tilraun
var gerð með þeim hætti, að lærð var rækilega röð af
merkingarlausum samstöfum. Strax á eftir var önnur röð
lærð. Nokkru síðar var prófað, hversu mikið var munað
af fyrri röðinni, aðalröðinni. í samanburðartilraun var
aðeins ein röð lærð, aðalröð, en engin aukaröð á eftir. Síð-
an var prófað, hversu mikið menn mundu síðar. Kom þá
í ljós, að stórum meira var munað af aðalröðinni en í fyrra
afbrigði tilraunar þessarar. Ýmsar aðferðir voru notaðar