Menntamál - 01.08.1962, Qupperneq 80
170
MENNTAMAL
3 + 2 ár og 1 + 2 ár, eða 4 + 1 og 2 + 1. Það gæti einn-
ig verið æskilegt, að báðar tegundir skiptinga ættu sér stað
hlið við hlið og enn fremur, að til yrðu 3ja og 5 ára skól-
ar, þar sem sérnámið á sér stað allan skólatímann.
Sú meginskipan, sem valin verður, þarf að geta komið
til móts við óskir og vilja meirihluta kennaranema. Hún
verður að fela í sér haldgóða, almenna kennaramenntun,
þjálfa þá í fjölbreyttum viðfangsefnum kennslustarfs-
ins, temja þeim einbeitingu í starfi og fela í sér þörf
fyrir aukna menntun með vaxandi reynslu.
í samræmi við þetta mun ég í því, sem hér fer á eftir,
leggja til grundvalalr skiptinguna 4 + 1 ár og 2 + 1 ár,
sem ég tel æskilegasta aðalreglu, þótt jafnframt sé þörf
fyrir aðra skipan.
Sá, sem hefur hlotið tveggja eða fjögurra ára almennt
kennaranám, getur, ef slíkt fyrirkomulag ríkir, valið á
milli allrar þeirrar sérmenntunar, sem menntastofnanir
kennara í landinu veita. Hann getur haldið áfram við sama
kennaraskóla eða annan kennaraskóla, hafið nám í handa-
vinnukennaraskóla eða stundað nám við háskóla. Hann
getur einnig valið eins árs kennaramenntun við háskóla
erlendis. Á sama hátt á það að vera unnt fyrir þann, sem
aflað hefur sér kennaramenntunar við háskóla, að nema
tiltekin atriði við kennaraskóla eða handavinnukennara-
skóla, vilji hann afla sér viðbótar, sem aðeins fæst í þeim
skólum.
Þannig myndast tengsli milli menntastofnana kennara
vegna þess sameiginlega hlutverks að veita fjölbreytta og
alhliða menntun á háu stigi.
Hlutverk kennaraskólanna verður í þessu efni einkum
það að veita þá sérmenntun, sem aðrar sérgreindar mennta-
stofnanir veita ekki. Þetta á einkum við um sérmenntun
fyrir barna- og unglingastig. Til þess að unnt sé að veita
slíka sérmenntun og tryggja gæði hennar, veltur á miklu,
að skólarnir skipti henni haganlega á milli sín, og kenn-