Menntamál - 01.08.1962, Qupperneq 102
192
MENNTAMÁL
arnir leiki samkvæmt réttum reglum. Hegning fyrir lé-
legan samleik er venjulega bannfæring. 1 hópvinnu ger-
ist það sama og í leikjum: sá, sem ekki bætir ráð sitt,
er rekinn úr hópnum. Séu þátttakendur hans aðeins tveir,
leitar sá óánægði samstarfs við einhvern annan hóp. Ein-
búinn verður ófarsæll, því að hóparnir eru venjulega sam-
ábyrgir. Hann verður að vera einn um tíma. Hegningin
verður áþreifanleg, og ég hef ekki kynnzt neinum, sem
ekki hefur tekið nærri sér almenna andúð félaganna.
Það kemur fyrir, að kennarinn verður að skerast í leik-
inn og fá dóm félaganna mildaðan.
Skipulegt samstarf.
Elsa S. Larson hefur fjallað um áhugasviðið (interesse-
ansrádet) sem hluta af námsefni ársins og sýnt, hvernig
nemendurnir velja sér verkefni, leysa þau annaðhvort
sjálfir eða í samvinnu við félagana og reyna að bæta úr-
launsir sínar með sjálfsgagnrýni og gagnrýni félaganna.
Þegar unnið er með þessum hætti, er starfið slungið f jöl-
mörgum félagslegum þáttum. Áhugasviðið er sameigin-
legt, það safnar nemendunum til samstarfs. Val áhuga-
sviðs er þegar félagslegs eðlis. Nemendurnir ákveða, áð-
ur en starfi á ákveðnu áhugasviði er lokið, að hvaða verk-
efni þeir ætla að vinna síðar.
í fyrstu eru gjarna valin einhver verkefni, sem eru
beinlínis á dagskrá. Mikilvægir atburðir, blaðagreinar,
kvikmyndaskrár og fleira þess háttar beina oft áhuga
þeirra að ákveðnu verkefni. Til dæmis vekur ófriðurinn í
Kongó löngun til þess að vita eitthvað um landið. Upp-
gröftur eða rannsókn á ákveðinni gröf dregur athyglina að
ákveðinni, sögulegri persónu eða ákveðnu tímabili í sög-
unni o. s. frv. Nemendurnir vita um námsefni ársins og
þeim er kunnugt um, hve langt valfrelsið nær. Innan sviga
mætti segja, að það væri mikill kostur fyrir hið frjálsa