Menntamál - 01.08.1962, Side 125
MEljlNTAMAL
215
legur útkomutími er haustið 1963. Einnig er í ráði, að Heintir Ás-
kelsson semji fyrir útgáfuna kennslubók í ensku.
Á næsta ári er m. a. áætlað að gefa út fyrir barnaskólana landa-
frœði, eftir Erling Tómasson og biblíusögur teknar saman af Þórði
Kristjánssyni og Steingrími Benediktssyni. í ráði er einnig, að gefa
út á næsta ári nýtt sönglagahefti fyrir 10—12 ára börn, tekið saman
af Ingólfi Guðbrandssyni.
Sumarið 1960 gerði ríkisútgáfan samning við Þórleif Bjarnason
um að semja íslandssögu, er nái yfir tímabilið frá upphafi íslands-
byggðar og a. m. k. til ársins 1944. Hugsanlegt er, að fyrsta heftið
geti komið út haustið 1963. — Áætlað er, að ný skölaljóð komi pd
einnig út. Um útgáfuna sér Kristján J. Gunnarsson. Ætlunin
er að vanda útgáfu þessara ljóða sérstaklega, myndskreyta
þau og litprenta og e. t. v. hafa þau í bandi. Rætt hefur verið um í
útgáfustjórninni að hefja útgáfu arkasafns eða leshefta. Ætlunin er,
að kennarar geti haft þetta lesefni til skýringar og uppfyllingar efni
ýmissa kennslubóka. — Umsjón með undirbúningi þcssa fyrirluigaða
arkasafns hefur Helgi Þorláksson.
Ríkisútgáfan gefur nú barnaskólunum kost á 63 mismunandi
ókeypis bókum og unglingaskólunum 19. Samanlagður eintakafjöldi
þessara bóka s. 1. ár mun hafa verið um 246 þúsund. Langflestar
bókanna fá nemendur sjálfir til eignar. Nokkrar lcsbækur eru þó cin-
ungis látnar ókeypis til skólanna, sem lána Jrær svo nemendum.
Þarna eru ekki meðtaldar nokkrar bækur, sem ríkisútgáfan hefur
úthlutað sérstaklega ókeypis til skólanna. Sem dænti má nefna Staf-
setningarorðabók og Söguna okkar. Um unglingaskólabækurnar,
sem úthlutað er í 1. og 2. bekk, má geta Jiess, að Jiær eru samtals tæp-
ar 162 Skírnisarkir.
Reynt er að hafa sem bezt eftirlit með notkun námsbókanna og
yrði of langt mál að fara ýtarlega út í Jiað hér. Hver nemandi á
rétt til að fá eitt eintak ókeypis. Ef hann glatar bók eða skemmir,
er honum skylt að kaupa nýja. Sparnaður í bókanotkuninni er ekki
aðeins uppeldislegt atriði, heldur einnig fjárhagslegt. Um leið og
útgáfan getur sparað við úthlutun bókanna, skapazt um leið mögu-
leikar til Jjcss að hún geri meira fyrir nemendur og skólana á öðr-
um sviðum.
Allar bækur útgáfunnar eru jafnframt til sölu á frjálsum markaði.
Ríkisútgáfan óskar eftir sent allra beztu samstarfi við kennara um
gerð námsbókanna. í samræmi við Jiað, er Jieirri reglu yfirleitt
fylgt, Jtegar ný kennslubók er í undirbúningi, að fá starfandi kenn-