Menntamál - 01.08.1967, Qupperneq 33
MENNTAMÁL
127
þarfir. En heyrnardaufa barnið á þarna í sífelldum erfið-
leikurn. Það getur illa látið skilja þarfir sínar, getur um
ekkert spurt og á næstum ómögulegt með að tjá eigin hugs-
anir. Það lærir þó furðu fljótt, að eftir því er tekið, ef það
gefur hljóð frá sér, og það er líka næstum það eina, sem það
getur notað röddina til. Langi það í einhvern hlut, hefur
það ekki önnur ráð en að benda á hann, eða leiða móður
sína eða þann, sem það leitar hjálpar hjá, að því, sem hugur
þess girnist.
Heyrnardaufa barnið á auðveldast með að gera tákn og
bendingar yfir það, sem það langar til að fá eða liafa hönd
á. Og vegna þess að það hefur svo litla möguleika til að tjá
nokkuð annað, beinist hugur þess mest að því sjálfu og því,
sem það langar til, en það elur aftur á eigingirni þess ogX
sjálfselsku. Heyrnardaufa barnið fer að mestu á mis við þau
uppeldisáhrif, sem fortölur og leiðbeiningar foreldra og
uppalenda veita öðrum börnum. Því meir, sem barnið
þroskast, því meiri þörf hefur það fyrir að tjá sig, en til
þess vantar heyrnardaufa barnið næstum allt, sem jafnaldr-
ar þess hafa. Það getur aðeins gripið til ófullkominna og
illskiljanlegra bendinga. Barnið veit vel, hvað það er að
reyna að segja, og skilur ekki, hversvegna aðrir skilja það
ekki. Það er þá engin furða, þótt barninu renni í skap, enda
er oft kvartað yiir því, að heyrnardauf börn séu skapbráðari
en önnur börn, en það stafar af því, að þau fá svo litla útrás
fyrir það, sem inni fyrir býr. Ég get ekki stillt mig um að til-
færa hér eitt dæmi, sem lýsir þessu vel.
Drengur, sem var hér í Heyrnleysingjaskólanum og hafði
lært dálítið af orðum, skrifaði mér oftar en einu sinni, ef
honum mislíkaði við mig, eftirfarandi bréf: Brandur vond-
ur. Jósep byssa. Brandur deyja. Já, setningarnar eru næsta
ófullkomnar, en vel skiljanlegar. Það átti sem sé að skjóta
mig, en til þess kom nú ekki, því Jósep var alltaf kominn
í bezta skap, þegar hann hafði lokið við bréfið, og rétti
mér það jafnvel brosandi og hýr. Aðeins við það að geta