Skírnir - 01.01.1917, Blaðsíða 22
Skírnir] Um launa- og eftirlaunatill. launanefndarinnar. 15'
3000 kr. embættismaður 60 kr. á ári og 690 kr. maðurinn
10 kr. ári. 3000 kr. embættismaður fengi þannig eftir 2
ár 120 kr. eða 480 kr. minna en eftir tilskipuninni frá
1855 og eftirlaunalögunum frá 1904, að sleptum sjálfkeypta’
lífeyrinum eftir öðrum lögum frá sama ári, sem nemur
litlu fyr en eftir langan tíma. Hann fengi eftir 15 ár 900
kr. og þannig 600 kr. minna en eftir tilskipuninni frá 1855,
og 52 kr. 24 aur. minna en eftir lögum frá 1904, sé sjálf-
keypta lífseyrinum 52 kr. 24 aur. bætt við eftirlaunin.
Loks fengi hann eftir 29 ár 1740 kr. eða 260 kr. minna
en eftir tilskipuninni, en hins vegar 306 kr. 48 aur. meira
en eftir lögunum frá 1904, þótt lifeyririnn, 253 kr. 52aur.,
væri talinn með. En reikni maður meðalaldur embættis-
manna 20.5 ár, eins og nefndin gjörir, fengi 3000 kr.
launamaður eftir þann tíma, samkvæmt nefndartillögun-
um, 1230 kr. á ári, eftir tilskipuninni fengi hann 1550 kr.
eða 320 kr. meira. Eftir lögunum frá 1904 fengi hann
að vísu ekki nema 1000 kr. í hrein eftirlaun og 89 kr.
08 aur. sem lífeyri, eða 140 kr. 92 aur. minna heldur en
eftir nefndartillögunum. En fyrir þær 140 kr. 92 aur.
hefði hann líka borgað 111 kr. 60 aur. á ári í 20 Va ár.
Á þessum útreikningum sést, að fatlist embættismaður á
fyrstu embættisárum sinum, þá liggur í rauninni lítið ann-
að fyrir honum en guð eða gaddurinn. Hann gæti ekki
lifað á lífeyrinum einum saman á Herkastalanum,
þó að hann hefði verið svo sparsamur, hvorki að kvæn-
ast, né eiga börn. Og ætti hann konu og börn eða ann-
aðhvort, yrði hann annaðhvort að segja alt hyskið til
sveitar eða senda konuna eða börnin í síldarvinnu norður
á Siglufjörð.
Eg verð þannig að álíta, að nefndartillögurnar bjóði
uppgjafaembættismanni yfirleitt ekki nándarnærri
eins mikla tryggingu, enda þótt hann sé látinm
kosta hana sjálfur að öllu leyti, eins og tilskipunin og
jafnvel eftirlaunalögin bjóða þeim nú, þeim að útgjalda-
lausu.
Og víkur þá máli að e k k j u t r y g g i n g u n n L-