Skírnir - 01.01.1917, Blaðsíða 30
■'Sklrnir]
‘Um launa- Qg eftirlaunatill. launanefndarinnar
23
Það verða 760 kr. á mann á ári eða rúmar 2 kr. á
tmann á dag.
Þetta vil eg kálla þ u r f t a r 1 a u n embættismanns
með 5 manns í heimili i Reykjavik. Lægri en þetta hefði
nð minsta kosti meðal-þurftarlaun Reykjavíkur-
embættismanns fyrir striðið ekki mátt vera. Og lægri
mega þau því siður verða eftir ófriðinn, því það mun því
miður sannast, að -verðlagið verður lengi að komast í samt
iag aftur, verði það á annað borð nokkurn tíma. B y r j -
unarþurftarlaunin hefðu ef til vill mátt vera eitt-
hvað lægri, -meðan annaðhvort engin börn eru eða ung,
en þó ber þess að gæta, að dærnið gerir ekki ráð fyrir
barnaómegð, enda heimilismenn færri en alment mun
gerast.
En við þessa upphæð, .3800 kr., verður að bæta fyrst
og fremst endurgjaldi á undirbúningskostnaði
embættismannsins og honum fylgjandi atvinnutjóni, og
þar næst igildi þeirra nýju eftirlaunakvaða, sem nefndin
-leggur á embættismenn. Eg geri ráð fyrir háskólament-
uðum manni og geri námsárin alls 12, 6 í mentaskólan-
um og 5—6 i háskóla; geri námsmanninum 500 kr. á ári
mentaskólaárin eða 3000 kr. í 6 ár, og 700 kr. háskóla-
árin eða 4200 kr. Undirbúningskostnaði undir skóla sleppi
■egí notum þess, að meðalháskólatími heimalærðra manna
mundi nú sem stendur sennilega ekki fara fram úr 5 ár-
um. Námskostnaður alls yrði þá 7200 kr. Og í atvinnu-
tap, í 7 ár eftir 18 ára aldur, geri eg námsmanninum að
meðaltali 400 kr. á ári eða alls 2800 kr.f Námskostnaður og
atvinnutjón á námsárunum nemur þannig alls 10000 kr.
Þessa upphæð geri eg landssjóði að endarborga embættis-
manninum með 6% i afborgun og vexti á 30 árum, eða
árlega kr. 578.30.
En þá er eftir að endurgjalda embættismanninum
árgjald það, er nefndin ætlar honum að leggja fram
árlega til eftirlauna handa sér og ekkju
s i n n i. Eg gjöri ráð fyrir þrítugum embættismanni i
-3000 kr. embætti og læt hann hafa kvænst 25 ára gam-