Skírnir - 01.01.1917, Síða 53
46
ísýtizkuborgir.
[Skírnir
niður og bygðir upp á ný. Verksmiðjunum með öllum
þeirra reyk og óþrifnaði var vísað í sérstaka hluta borg-
anna og ströng aðgæzla höfð á, að bæði væri þeim svcr
haganlega komið fyrir sem kostur var á og alls þrifnað-
ar gætt. Lögboðið var hve húsakynni manna skyldu
vera stór að rúmmáli, til þess að þau mætti leigja, og sér-
stakir umsjónarmenn settir með íbúðum, er skyldu gæta-
þess, að fleiri hrúguðust ekki saman i hverja íbúð en hóf-
legt væri. Er nú svo komið, að nálega helmingur alls
bæjarstæðisins í nýjum borgarhlutum er óbygðui', annað-
hvort götur, torg eða lystigarðar, auk sjálfra húsagarð-
anna, Með þessu hefir það unnist á, að manndauði hefir
víðast minkað til mikilla muna, og það svo, að í góðum
borgahlutum er liann litlu meiri en í sveitum1), og að-
sjálfsögðu hefir alt útlit borganna batnað á margan hátt,
Sumir bæir tóku til að byggja hús hundruðum saman fyr-
ir fátækt fólk og leigðu þau með sanngjörnu verði, keyptu
heilar landspildur til þess að þær lentu ekki í höndum
íasteignabraskara og hækkuðu gegndarlaust í verði. Fé-
lög risu upp til þess að koma upp góðum húsum fyrir
verkamenn, og auðmenn styrktu þau öfluglega2). Jafn-
framt þessu prédikuðu ótal blöð og bækur það látlaust,-
hve varhugavert það væri að yfirgefa sveitirnar ,og flytj-
ast til borganna. Sveitamönnum var jafnvel í sumum
löndum gerður sá mikli greiði, að leggja allhátt innflutn-
‘) A b e 1: Handb. d. prakt. Hyg. I. bls. 25 telur (eftir B a 11 o d)
meðalaldur nýfædds sveinbarns í prússnesku borgunum 38,7 en f prússn.
sveitunum 42,8.
2) í Philadelpiu (l’. S.) einni störfuðu t. d. 600 byggingafélög 1890.
Manndauði í nýju húsunum var fjórðungi minni en í New York. I Eng-
landi og Þýzkalandi er aragrni af slíkum félögum, i Danmörku og víð-
ar. Yíða hefir það þó skrykkjótt gengiö að þessi fyrirtæki kæmu að-
tilætluðum notum. Ef fátæklingar liéldust á annað borð við i húsunum,-
leigðu þeir og bjuggu sjálfir eftir sem áður í einu lierbergi eða tveimur,-
til þess að húsaleigan yrði sem ódýrust, en oft vildu liúsin ganga úr*
greipum ]ieim og lentu hjá bjargálnamönnum, sem þau voru ekki upp-
haflega ætluð.