Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1912, Blaðsíða 118
94
ÓLAFUR s. thorgeirsson:
lagi. Þau hjón hafa verið hjer að maklegleikum virt og
vel metin.
42. ÞÁTTUR.
Sigurður Mag'nússon. Faðir Sigurðar var Magn-
ús bóndi áSævarlandi í Ytri-Laxárdal í Skagafjarðarsýslu,
Gunnarssonar frá Geitagerði í Reynistaðasveit í Skaga-
firði, en Gunnar í Geitagerði, var—að fróðra manna
sögn—kominn í beinan karllegg frá Barna-Gunnari, sem
lengi bjó á Hvalsnesi á Skaga og lifði þar í gegnum móðu-
harðindin miklu, sem gengu yfir Island—ef mig minnir
rétt—litlu eptir 1750; var Gunnar sá fjórgiptur og átti
með þeim að talið var 30—40 börn; af þeim komust á
fullorðins ár 27 og var það að ágætum haft, hve þau voru
jafn mannvænleg og vel uppkomin; var hann svo kallaður
Barna-Gunnar og hefir verið að líkum, einn mestur ætt-
faðir á íslandi. Gunnar í Geitagerði var þríkvæntur og
munu þeir Magnús og Ingjaldur bræður, hafa verið af
fyrsta hjónabandi hans; sá Ingjaldur bjó í Fyhildarholti í
Hegranesi og andaðist þar árið 1869, en Magnús mun
hafa dáið árið 1873 á Sævarlandi. Móðir Sigurðar, var
Sigríður Guðvarðardóttir frá Ketu á Skaga. Systkini
Sigurðar voru: Hallfríður, kona Þórarins Guðmundarson-
ar í Red Deer; Sveinn, bóndi við Foam Lake, Sask.; Ingi-
björg, seinni kona Sigurðar Grímssonar við Brunt Lake;
heima á íslandi eru: Sigríður, kona Jóhanns Sigurðsson-
ar á Sævarlandi; Guðvarður, bóndi á Hafragili og Ingunn,
kona Ólafs Sveinssonar bónda á Akri á Skaga. Ein var
hálfsvstir þeirra, Inga að nafni, nú déin. Sigurður
kvæntist ungfrú Onnu Kristínu Pjetursdóttur frá Mikla-
hóli í Viðvíkursveit í Skagafirði, var sá Pjetur Gunnlaugs-
son, Jónssonar prests á Barði í Fljótum; móðir Önnu
Kristínar var Jóhanna Ólafsdóttir, söðlasmiðs á Stóra-