Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1912, Blaðsíða 143
ALMANAK 1912.
119
(ekkja hans heitir Steinunn Þorsteinsdóttir frá Jóns-
húsum í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans, Gísli
Brynjólfsson og Þorbjörg Þorsteinsdóttir, er eitt sinn
bjuggu á Hóli undir Ej'jafjöllum), 66 ára.
6. des. 1910: Björn Hermannsson,til heimilis hjá tengda-
syni sínum Steindóri Árnasyni í Nýja-íslandi (frá Sel-
stööum viö Seyöistjörð), 77 ára.
10. des. 1910: Guðbjörg Magnúsdóttir til heimilis á Bald-
ur, Man. (ættuð úr Þingeyjarsýslu), öldruð kona.
12. des. 1910: Snjólaug Jónsdóttir, kona Jóns Jónssonar
í Selkirk, dóttir Jóns bónda Björnssonar og konu
hans Margrétar í Nýja-íslandi, 23 ára.
12. des. 1910: Ragnhildur, dóttir hjónanna Skúla og
Halldóru Johnson í Victoriu, B. C., 17 ára.
18. des. 1910: Vigdís, kona Paul Johnston í Winnipeg;
dóttir H. S. Bardais, bóksala, 26 ára.
19. des. 1910: Magnús Johnson bóndi í Pembina County
1 N.-Dak. fæddur á Hóli í Öxnadal íEyjafj.s. 15-nóv.
1848. Heitir ekkja hans Rósa Guðlaugsdóttir frá
Steinkirkju í Fnjóskadal í Þingeyjars. Fluttu hingað
vestur 1874.
24. des. 1910; Guðmundur Kristjánsson, Mattíasson (frá
Hliúi á Álftanesi), til heimilis í New Brunswick í
Canada, 67 ára.
28. des. 1910: Helga Sotfía Bjarnadóttir Johnson við
, Lundar-pósthús í Manitoba, 19 ára.
1 desember 1910: drukknuðu tveir ungir menn í Winni-
pegvatni: Kristbjörn, sonur Stefáns bónda Sigurðs-
sonar við Árnes-pósthús, eins af frumbyggjum Nýja-
íslands; hét hinn Stefán Jónsson frá Búatöðum í sömu
sveit.
Janúar 1911:
4 Kristinn Hermannsson, nálægt Seattle, Wash. (ætt-
aður úr Eyjafirði), 60 ára.
5. Margrét Árnadóttir, kona Odds G. Akraness, bónda
við Hnausa-pósthús í Nýja-íslandi, ^ættuð af Akra-
nesi), 60 ára.