Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1912, Síða 155
ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ
um ráðstöfun málma í Norðvestur - Canada,
KOLALAND---------Kolanámu réttur getur leigður orðið um
tuttugu og' eitt ár, gegn $1.00 afgjaldi af hverri ekru á ári. Engum
einstaldingi eða félagi er selt meir en 2,560 ekrur. Auk þess skal
kauþandi greiðn stjóinargjald (Royalty) at því, sem úr námunum er
tekið eítir því sem ákveðið kann að verða með leyndarráðs samþykt
við og við.
MÁLMGRJÓT (quartz).---------Einstaklingar, sem eru átján ára
a8 aldri og- þar yfir, og hlutafélög, er hafa „Free Miaer's" skírteini
geta látið skrifa sig fyrir námubletti eða lóS.
Skírteinishafi, sem uppgötvað hefir málm á einhverjum stað, má
afmarka sér þar námalóð, sem sé 1500 fet á lengd og 1500 á breidd.
Gjaldið fyrir að rita einhvern fyrir námu lóð er $5.00.
Sá, sem þannig hefir numið námu lóð, verður að eyða að minsta
kosti $100.00 á ári í hana, eða borga þá upphæð til hlutaðeigandi
„Minning Recorder" í staðinn. Þegar námuhafi hefir þannig eytt
$500.00 eða borgað þá, má hann, eftir að hafa látið mæla lóðina og
uppfyit aðra skilmála, kaupa landið fyrir $1.00 ekruna.
Gullsands eða ,,Placer“ námulóðir eru vanalega 500 fet á lengd
og trá 1000 til 2000 fet á breidd; innritunargjald fyrir þær er $5.00
hverja, ekki minna en $100.00 verður að eyða í hana á ári hverju.
Sá, sem leyst hefir „Free Miner’s skírteini getur einungis
tengið tvö vélargraftar-leyfi fyrir fimm mílur hvert, er nái yfir tutt-
ugu ár, og má innanríkis-ráðgjafinn endurnýja þau ef honum sýnist.
Leyfishafi skal hafa eina graftraivél í gangi innan eins sumars
frá dagsetningu leyfisins fyrir hverjar fimrn mílur, en þegar ein-
staklingur eða félag hefir fengið meiren eitl leyfi, nægir ein grafar-
vél fyrir hverjar fimm mílur, eða brot úr þeitn. Afgjald at hverr'
mílu, sem þannig er leigð, er $10.00 á ári. Auk þess greiðist
stjórnargjald, er nemur tveimur og hálfum af hundraði, af því sem
upp er grafið eftir að það nemur $10,000 að verðhæð.
W. W. CORY,
Deputy of the Minister of the Interior.