Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1929, Page 31
Almatmk
Útgefandi: Ólafur S. Thorgeirsson.
35. ár.
WINNIPEG
1929.
JOHN BUNYAN.
ÞRIGGJA ALDA MINNING.
Eftir Richard Beck.
Þeir eru ekki ýkja margir, jafnvel í flokki heimsins
mestu snildar-anda—listamanna, heimspekinga og skálda
—sem veriS hafa svo öldum skiftir máttugt vald, yl-
gjafar og orku, í andlegu lífi iþjóSar sinnar, hvaS þá
utan vébanda hennar. Pyrir þá sök eru slíkir menn
þeim mun aSdáunarverÖari, og sannarlega eiga þeir það
skilið, aS vér hinir kynnumst þeim, og reynum til aS
skilja í hverju vald þeirra yfir hugum manna, kynslóS
eftir kynslóÖ er fólgiS.
Einn slíkra manna, John Bunyan, á þriggja alda af-
mæli nú í ár. Um hálfrar þriðju aldar skeiÖ hafa rit hans
sér í lagi eitt þeirra svo sém síSar mun greint verSa, haft
geysimikil áhrif víSa um lönd, en þó einkanlega á hugs-
unarhátt enskra manna og enskumælandi hvarvetna um
heim. Er hans því aS verSugu minst víSsvegar á þess-
um tímamótum. Ekki er lutnn heldur meS öllu ókunnur