Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1929, Blaðsíða 49
39
S'igurður Guðmundsson er fæddur 1857 í Tungu í
Hörðudal í Dalasýslu. Foreldrar hans voru hjónin Guð-
mundur Hannesson og Málfríður Sigurðardóttir ættuð úr
Eyrarsveit í Snæfellnessýslu. Þeir feðgar, Guðm. og
Hannes bjuggu hvor fram af öðrum í Tungu og vom
taldir gildir bændur. Systkini Sigurðar þessa voru mörg.
Þrjár systur hans komu vestur um haf, er ein þeirra Jó-
hanna kona Þórðar Anderspn í Bellingham. Sig. ólst
upp í föðurhúsum, hafði um tíma stjórn á heima-búinu.
Hann fluttist vestur um haf 1887 til Winnipeg, og þaðan
til Mountain, N. Dak. Kom vestur að hafi til Seattle
1900, til Blaine 1902 og hefir verið hér síðan. Sigurður
er skýr maður og minnugur, en lætur lítið yfir sér. Hann
er ókvæntur.
Sigtýr Júlms Johnson er fæddur 14.' júlí 1861 aö
Brautarholti í Svarfa'Sardal í Eyjafjarðarsýslu, þar sem
þá bjuggu foreldrar hans, Jón Jónssonar ríka á Auðnum í
Öxnadal, og Jóhanna Jónsdóttir, komin af hinni nafn-
kunnu Hjálmstaða-systrum í Evjafirði. Þær systur voru
fjórar, Margrét, Guðrún, Soffía og Björg. Voru þær
stórar vexti og mikilhæfar konur. Margrét var fyrri
kona Arngríms málara Gíslasonar frá Skörðum og móðir
Nönnu, konu Benedikts Jónssonar Benson í Winnipeg,
Jfrá Stóruvöllum í Bárðardal). Sigtýr ólst upp á Völl-
um í Svarfaðardal hjá hjónunum séra Páli Jtónssyni
og Kristínu Þorsteinsdóttur, þar til hann var 19 ára. Þá
kom s'éra Páll honum til Jóns Stephanssonar bygginga-
meistara á Akureyri til að nema smíðar. í þann tíma
var Sigtýr til heimilis hjá Einari, syni séra Páls, fóstra
síns, og Maríu Matthíasdóttur konu hans, sem þá höfðu
umsjón á sjúkrahúsinu á Akureyri. Meðan Sigtýr var
hjá Jóni Stephanssyni, smíðuðu þeir Gránufélags verzlun-
arhúsin á Oddeyri og skólann á Möðruvöllum í Hörgár-