Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1929, Page 50
40
dal. SamtíÖa Sigtýr voru þá að námi hjá Jóni Stephans-
syni, þeir herrar, Magnús Sigfússon Blöndal, nú í Réykja-
vík og Stefán Stefánsson frá Brafnhóli i Hjaltadal.
Meðan Sigtýr var hjá Jóni Stephanssyni bygðu þeir og
fyrir Gránufél. á Siglufirði. Iiafði Sigtr. þá verið á 4.
ár hjá Jóni við smíðar. Eftir það fór hann til Teits
veitingamanns Johnsen á ísafirði og bygði fyrir hann
gestgjafahús, sem þá var í smiðum. Tvö ár var Sigtýr á
ísafirði, síðara árið við kirkjubyggingu hjá Guðmundi
ríka á Núpi í Dýrafirði. Þá fór hann aftur norður á
Akureyri og var við húsabyggingar. Árið 1885 kvæntist
hann Guðrúnu Snorradóttur, systur Matthíasar Þórðar-
sonar, sem lengi var i Selkirk og Vilborgar Jackson (nú
dáin) á Point Roberts. Fluttu þau hjón að heiman árið
1900, og vestur að hafi ári seinna. Það surnar vann Sig-
týr á Point Roberts, en fór um haustið til Blaine, keypti
þar lóð og ibygði bráðlega. Þau hjón Sigtýr og Guðrún
bjuggu í Blaine 20 ár. Fluttu þá til Seattle og hafa verið
þar til heimilis síðan. Á stríðsárunum vann Sigtýr við
skipasmíðar í Bellingham. Börn þeirra lijóna eru : Axel,
vinnur við skrifstofustörf; Kristín, gift Dr. S. Max,
lælcni í Suoqualmee, Wash.; Þóra, gift hérl. manni og búa
í Seattle; Gústaf, tannlæknir i Los Angeles, giftur hérl.
konu; Jóhanna, lærð hjúkrunarkona í Seattle; Arthur,
læknaskólanemi í Chicago. — Sigtýr er prýðilega vel gef-
inn maður og ramislenzkur í lund, og ágætur smiður og
hefir jafnan stundað þá iðn hvar sem hann hefir veriS.
Öll er fjölskyldan vel að manni, en ekki hefir það fóllc
gefið sig að íslenzkum félagsskap, sem neinu nemur.
Hildur Eyj'ólfsdóttir er fædd 1847 Miðgrund í
Rangárvallas. Foreldrar hennar voru Fyjólfur Einars-
son og Sigríður, sem þá bjuggu að Miðgrund. Faðir
Hildar lézt þegar hún var 5 ára. Fór hún þá til fööur-
systur sinnar Herborgar Einarsdóttur og manns' hennar,