Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1929, Page 71
61
bónda og Sesselju Einarsdóttur, sem lengi bjuggu aS
Stóra-Vatnshorni i Dalasýslu.
J. O. Magnússon ólst upp hjá móöurbróður sínum,
Jósep Hallssyni og konu hans Rósu, móðursystur sinni
J. O. Magnússon Ingibjörg Jónsdóttir
á Skarði i Haukadal, þar til hann var 14 vetra. Eftir
það var hann á vegum Halldóru og Jóns bónda á Skinn-
þúfu og fluttist með þeim vestur um haf 1888, til Hall-
son, N. Dak, en þangað voru þá foreldrar hans komnir
á undan honum. Var Jósep nú mest til heimilis hjá þeim
þangað til 1901 að hann kvongaðist Ingibjörgu Jónsdótt-
ur Jónssonar (getið hér á öðrum stað). }. O. Magnús-
son hafði um eitt skeið, greiðasöluhús á Hallson, auk
þess verzlaði hann með reiðtígi o. fl. hafði á hendi póst-
flutning í því héraði og ýms önnur verk, Árið 1906 flutt-
its hann ásamt fjölskyldu sinni til Blaine og hefir verið
]iar síðan. —- Þeg^ar vestur kom setti Magnússon þegar
upp klæðaverzlun, fyrst í félagi við Valdimar Johnson
(getið hér á öðrum stað), en varð bráðlega einn um hana,
og farnast vel. Nú hefir hann og verið nokkur ár í stjórn