Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1929, Síða 77
Bjuggu þau hjón mörg ár í Argyle-bygíS og teljast til
frumbyggjanna, bæði þar og í Nýja íslandi. Jóhann Er-
lendur var meÖ foreldrum sínum þangaÖ til hann var 19
ára. Fór hann þá til Montana og vann þar í 5 ár vicS
hrossagæzlu og tamningar. Fór svo austur aftur til Matii-
toba og haftii meÖ sér töluvert af viltum eða hálf-viltum
hestum og seldi þá þar. ÁriÖ 1898 kvongaöist hann Sól-
veigu Ásmundsdóttur, ekkju Jóns kafteins Dalstead, er
druknaÖi i Winnipegvatni tveimur árum áður. Þau hjón
fluttust frá Selkirk til Grunnavatns-hygÖar í Manitoba.
Þaðan aftur til Selkirk, og árið 1903 vestur að hafi, og
settust að í Blaine. Árið 1911 fóru þau til Vancouver,
B.C., voru þar fá ár, komu þá aftur til Blaine. Síðustu
7 eða 8 árin hafa þau dvalið í bænum Everett. Þau hjón
eiga þrjá sonu, alla uppkomna. Eru tveir giftir, Jón og
Henry, báðir til heimilis í Tacoma, en heima er Þorsteinn.
Allir efnilegir og góðir menn. Eina systur á Erlendur,
hún er Helga, ikona Henry Leví Júlíus að Point Roberts.
Sólveig kona Erlendar er fædd að Eitla Bakka í Hróars-
tungum í Múlasýslu 1868. Þar bjuggu foreldrar hennar,
Ásmundur Þorsteinsson og Bergþóra Jónsdóttir frá Arn
hilstöðum í Skriðdal í S.-Múlasýslu. Svstkini Sólveig-
ar, sem enn lifa eru: Jónína, kona Hannesar Hannesson-
ar i Winnipeg, Þorsteinn í Selkirk, smiður. Sólveig
fluttist vestur um haf með foreldrum sínum, 1876. Var
eitthvað hjá þeim í Nýja íslandi, en fór snemma til Win-
nipeg og vann þar fyrir sér við barnfóstur og síðar mat-
reiðslu. Ung var hún gefin Jóni Dalstead, kafteini, en
misti hann, eftir fárra ára sambúð, í vatniS, frá 4 ungum
börnum. Börnin eru Gustave Norman, Fjóla, Karl og
Hólmfríður. Fluttust þau með móður og stjúpföður
vestur að hafi og eru nú öll gift, nema Karl, sem enn er
hjá móður sinni í Everett. — Jóhann Erlendur er mesti
dugnaðarmaður og greindur vel. Svo er og Sólveig. Hann
hefir lengstum rekið kjöt- og gripaverzlun fyrir sjálfan