Fróði - 01.01.1914, Blaðsíða 38
102
FRóDI
“HvaíS eigum vér acS eta til aS lengja lífiS?
“HveitiíS er jafngamalt og hin elsta menning mannkynsins og
þa<$ er líka bezt of öllum korntegundum. ÞaS var aðalfæÖa
Egypta hinna fornu. Jósep getur um hveitibindin, og, hann safn-
aSi hveitinu í hlöður miklar og geymdi. Forngrikkir fyltu mæli
sína þurru hveitikorni á hergöngum sínum, og á dögum Cesars,
og hinna rómversku heimspekinga og skálda, kváðu hin frægu
skáld þeirra hveitinu lof og dýrð. Og sannarlega má kalla hveit-
ið konung korntegundanna, því að það hefir í sér fleiri næringar-
efni, en nokkur önnur tegund.
“Hinir miklu menn heimsins, sem hafa hrifið hann með
orðum sínum, eður fylt hann undrunar með stórvirkjum sínum,
hafa aldrei verið bornir í hinum heitu suðlægu bananalönd-
um, heldur í hinum svalari hveitilöndum á 35 til 55 gráðu norð-
lægrar breiddar.
Menn geta auðveldlega lifað á hveiti og mjólk eingöngu.
En aldrei gæti nokkur maður lifað til lengdar á brauði, sem
gjört væri af hinu fínasta hveitimjöli, því að, til þess, að geta
lifað á hveitinu, þurfa menn að nota kornið alt.
En efnin, sem eru í hveitinu, eru þessi: Oxygen, hydrogen,
carbon, nitrogen, phosphorus, magnesia, sulphur, kalk, pottaska,
silica, soda, chlorine—í stuttu máli, þar eru öll efnin, eða því
sem næst, er nauðsynleg eru til þess, að viðhalda líkama og lífi
mannsins; og þó er ég þeirrar skoðunar, að fjölbreytt fæða sé
manninum nauðsynleg.
Mjólk er ágæt fæða. Kornméls (mais) grautur og mjólk
haframjöl, haframjölsgrautur einu sinni eða tvisvar á dag, og haf-
ra brauð ósýrt og mjólk, hafa í sér allar þær tegundir efna, sem
manninum eru nauðsynlegar til næringar. Og þessvegna er
það, að rnenn þreytast eiginlega aldrei af þeim frá vöggunni til
grafarinnar. En sé svo, sem stundum kemur fyrir, að maginn
eða næringarfærin séu eitthvað í ólagi og mjólkin meltist ekki
þá er ráðið eitt, að blanda dálitlu saman við hana af kalkvatni.
Til skamms tíma hafa menn vanalega gripið til þorska-
lýsis, þegar eitthvað hefur gengið að, einkum við börn. En nú
eru beztu læknar íÞýskalandi farnir að taka viðsmjörið (Olive