Fróði - 01.01.1914, Blaðsíða 59
FRÓDI
123
Þá er og nokkuS stór blettur mældur austur af Grande Prair-
ie, og þó nokkuð til suðurs. Það er í kringum Sturgeon Lake og
þó mest suður af því, eitthvað 1 0 township.
Á öllum þessum blettum eru menn farnir að nema land, og
■sveitir og pósthús komin. Miklu víðar hafa menn unnið.
Loftslag þar er eðlilegra norðurlandabúum. Þar eru sumar-
næturnar björtu og dagurinn langi og hinir þýðu vindar af vestri.
svo að þar eru jarðir og snjóleysur á vetrum. Kuldar og frost
koma þar að visu, en þeir standa ekki lengi, og oftast er logn
t>egar frost er mikið.
Það haustar þar seint og vorar snemma. Vorið er mjög
reglubundið, æfinlega komið 15. apríl, þá er snjórinn farinn,
jörðin þýð og blómin farin að gróa. Og úr því vex hitinn jafnt
og stanslaust til miðs sumars. September er æfinlega ágætis
mánuður.
Gripir ganga úti einkum í Pouce Coupie og Dunvegan sveitun-
um og Spirit River. Gróður er þar líkur því, Sem er í suðrænum
löndum, og stafar það af hinu langa sumri og milda lofti.
Spirit River er sunnan við Dunvegan eins og sagt hefur verið
en Pouce Coupie vestan við Dunvegan upp með Peacefljótinu.
Miklu eru snjóar fljótari að fara þar, er vorar, heldur en hér
í Manitoba eða Norður Dakota.
Á hinni miklu sléttu er Grande Prairie nefnist, er land gott
og skógur ekki mikill, en þó mun landið opnara og ríkara norður
af ánni milli Dunvegan og Peace River Crossing, og langt þar
norður af. Enda má marka það af því, að J. D. McArthur legg-
ur þar járnbrautina beggja megin. Aðalbrautin liggur frá endan-
um á Le^ser Slave Lake og stefnir til Smoky River yfir hana nokk-
uð beina stefnu og til Dunvegan. En svo kvíslast önnur braut
út úr henni nokkuð vestan við Slave Lake, og liggur til Peace
River Cro^sing eitthvað 1 00 mílur norður og austur af Dunvegan.
Það an frá Peace River Crossing á svo brautin að liggja í stórum
sveig til norðurs og vestur til Dunvegan. Brautin er því sem
voðamikil járntöng, og heldur í lokuðum kjaftinum mörg hund-
ruð fermílum af einhverju besta landinu norður þar. En frá
Dunvegan liggur svo aðalbrautin vestur í skörðin.