Fróði - 01.01.1914, Side 55

Fróði - 01.01.1914, Side 55
FRóDI 119 sanngjarnt. Og það myndi verða til þess aS lyfta karlmanninum á Kærri tröppu hreinleika og siSgæðis og þannig verSa stórkost- legur ávinningur fyrir alt mannfélagiS. Menn ættu sannarlega aS brjóta af sér ánauð og þrældóm skoðananna, hefðarinnar og venjunnar. Og konurnar, Þær ættu að hafa algjört frelsi. Þær mundu sýna það með breytni sinni, að þær kynnu að meta það, með því að troða ekki á rétti annara. En þær verða að hafa mannskap í sér, að verja sig sjálfar og sinn rétt. Hingað til hafa karlmennirnir búið til venjurnar og skoð- anirnar og lögin, og eins þau lög sem að konum lúta og konur verða að hlýða. En nú eru böndin að losna, böndin sem hafa reyrt saman hæfileika kvennfólksins svo þær hafa ekki notið þeirra. Ég vildi óska þess, (segir Lady C) að seinasta þrældóms- haftið hjaðni og verði að engu, svo að konan geti neytt sín í fyllingu hugsjóna sinna, með höfuð við himin uppi, en fætur á fastri jörðu. Að hún gæti seilst með annari hendi upp á næstu rim stigans, sem hún er nú stöðugt að þokast upp eftir, en hinni hendinni seildist hún niður til að lifta þeim upp, sem henni vilja fylgja—að hún verði fegurri en hinar fegurstu líkneskjur, sem nokkur mindasmiður hefur í málm höggvið, tignarleg og róleg sem Aþena, léttlimuð og lipur og þróttmikil í anda, sem hún er tiguleg að líkama, trygg og trúföst og stöðug í áformum sínum, viðkvæm og þýð, en með leiftri andans og gáfnanna, hatandi léttúð og uppgjörð og hræsni, en elskandi sannleikann og einfeld- nina.sannarlegur maki fyrir sannan, hreinan og elskulegan mann, hæfileg og eftirsóknarverð móðir hinna hraustu sona og siðprúðu dætra, sem eiga að vera feður og móður fullkomnari og elsku- legri karla og kvénna komandi tíma.

x

Fróði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.