Fróði - 01.01.1914, Blaðsíða 87
FRóDl
151
varúð og viti. Þeir eru mjög fáir sjúkdómarnir, sem ekki hafa
gott af föstunni. Það mætti kanske undantaka tæringuna, en
nú vill Fróði ekki um hana tala því að tæringargrein liggur fyrir
hendi eftir merkan læknir og svo verður kanske sagt um hana
meira seinna af manni sem Fróði treystir betur til þess en sjálfum
sér. Þó má geta þess að stöku læknar halda fram stuttnm föst-
um til þess að hreinsa meltingarfærin, í þeim tilgangi að þau
verða því færari um að gegna störfum sínum, og sjá fyrir allri
þeirri fæðu, sem þau best geta. ’Og því harðari og hættulegri
sem sjúkdómurinn er, því meira ríður á föstunni.” Með þessari
bendingu endar Hereward Carrington grein sína. Er hann mað-
ur merkur, þektur og viðurkendur víða um lönd, þó að landinn
hafi lítið um hann heyrt, sem suma aðra.
Heilbrigðis trúarjátning Elbert Hubbard’s.
(Niðurlag).
Ég trúi, að heilbrigðir og vel æfSir þarmar séu alveg eins
nauSsynlegar og heilbrigSir og vel æfSir heilar.
Ég trúi aS fyrir líkamsmenningu muni aSgjörS og viShald
líkamans fara svo nærri því, aS jafnast á viS þaS, sem af honum
slitnar og eySist, aS ellin sækji menn heim meS bros á vöium, án
þess aS hafa nokkrar þjáningar í förum sínum.
Ég trúi á hiS hreina, ferska loft, hiS hreina vatn, á reglulegar
stöSugar líkamsæfingar, á hreinlæti og siSsemi og fremur öllu
öSru á hófsemi, og jafnargeS.
Ég trúi, aS vér séum þaS, sem vér erum fremur öllu öSru
fyrir áhrif þau, sem sálin hefur á líkamann.
Ég trúi á reglubundin störf manna.
Ég trú á metnaS þann og andans líf, sem finnur unaS og full-
nægju í störfum lífsins.
Ég trúi, aS vér aSeins getum veriS heilbrigSir og hraustir á
sál og líkama þegar vér lifum samkvæmt lögum náttúrunnar.
Ég trúi aS maSurinn sé einlægt aS skapast, og aS þaS sé enn-
þá ekki ljóst, hvaS vér á endanum eigum aS verSa.
Ég trúi á hendur þær, sem vinna á heila þá, sem hugsa, og
hjörtu þau sem elska.